Elínborg Una Einarsdóttir skifar lofsamlega um sýningu Borgarleikhússins á Hamlet í Morgunblaðið – dálítið á skjön við aðra gagnrýni sem birst hefur. Hún vill borga ungu kynslóðinni fyrir að mæta í leikhús svo þau standi ekki tóm eftir 30 ár:
„Einn helsti vandinn sem menningarstofnanir þessa lands standa frammi fyrir í dag er að ungt fólk er ekki að heimsækja þær. Sýning sem þessi, sem fjallar á djúpan hátt um veruleika ungs fólks á þeirra forsendum, gæti verið einn lykillinn að því að mæta þeim vanda. Annar vandi er vissulega að fáir undir þrítugu eru að fara að eyða 8.000 kr. í leikhúsmiða (né til dæmis í skáldsögu ef út í það er farið) og það þarf líka að skoða. Í Frakklandi fær ungt fólk til dæmis 300 evra inneign árlega, um 44 þúsund krónur, til að eyða í menningu og það er til fyrirmyndar. Eitthvað þarf allavega að gera til að tryggja að leikhús, söfn og bókabúðir þessa lands standi ekki auð eftir 30 ár.“







