Heimildakvikmyndin „Maðurinn sem Elskar Tónlist“ um tónlistarmanninn Þóri Baldursson fer í almennar sýningar 8. janúar ’26 í Bíó Paradís. Jóhann Sigmarsson fjöllistamaður sem gerir myndina forsýndi hana í Bíó Paradís á dögunum við mikin fögnuð og ánægju gesta. Og Þórir Baldursson þakkar fyrir sig:
Kæru vinir.
Þakka öllum sem sáu sér fært að koma á forsýningu myndarinnar um tónlistarferil minn. Það gladdi mig mikið hve margir áttu heimangengt.
Ég vona að mér hafi tekist að knúsa ykkur öll!
Það er ljóst að ég er ekki eini „maðurinn sem elskar tónlist“
Ást til allra.
Ykkar Þórir
–







