HomeGreinarFRÍMANN FLUGKAPPI

FRÍMANN FLUGKAPPI

Einar Scheving.
Einar Scheving.

„Þeir sem hafa unnið með Jakobi Frímann oftar en einu sinni vita að þar er á ferðinni enginn venjulegur maður. Fyrir utan augljósa hæfileika til að skapa tónlist sem hreyft hefur við fólki í hálfa öld, þá er eins og hann sé á einhverjum sérsamningi við almættið,“ segir Einar Scheving trommuleikari sem var með Jakobi í Vaglaskógi um helgina:

„Jakob fær hugmyndir og almættið svarar honum yfirleitt með því að bæta um betur þannig að útkoman kemur honum jafnvel sjálfum á óvart.
Ein birtingarmynd þessarar samvinnu við almættið var hin sérlega vel heppnaða hátíð „Vor í Vaglaskógi“ sem Jakob hélt um helgina, þar sem sumarblíðan lék við rúmlega 7000 gestina.
Skömmu eftir að við Róbert Þórhallsson og Valbjörn Lilliendahl höfðum leikið með hliðarsjálfi Jakobs, Jack Magnet, þurftum við að ná flugi frá Akureyri til Reykjavíkur. Jakob vildi ólmur skutla okkur út á flugvöll, þótt ég reyndi að sannfæra hann um að fá annan í verkið, enda hefði hann í nógu að snúast sjálfur.
Hann svaraði að honum væri ljúft og skylt að keyra okkur á flugvöllinn og að síðan myndi Frímann flugkappi (nafni sinn og viðfangsefni samnefnds Stuðmannalags) leysa sig af hólmi og koma okkur áleiðis til Reykjavíkur.
Jakob var að sjálfsögðu að grínast, en þegar við vorum sestir um borð tilkynnti flugfreyjan að flugstjórinn í þessari ferð væri FRÍMANN Svavarsson!“
TENGDAR FRÉTTIR

NÝIR LJÓSMYNDARAR LÍTA DAGSINS LJÓS – ÚTSKRIFTARSÝNING

Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans opnar 12. desember í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Tryggvagötu og stendur til 11. janúar - ókeypist aðgangur. Á sýningunni eru verk þeirra nemenda sem...

NÝJA INNRAUÐA SAUNAN SLÆR Í GEGN – EINS OG AÐ REYKJA LÉTTA JÓNU

Húsmóðir í Vesturbænum skrifar: - Mikið er nýja innrauða saunan í Vesturbæjarlaug góð. Þarna situr maður í fallegri birtu í þögn og félagsskap og hitnar hægt...

45 ÁR FRÁ MORÐINU Á JOHN LENNON

Í dag eru 45 ár frá því að John Lennon var myrtur fyrir utan heimili sitt í Dakota byggingunni á Manhattan í New York....

MARKÚS OG FRÚ ÁVÍTUÐ EINS OG ÓÞÆGIR KRAKKAR Á TIPSY

Útvarpsmaðurinn Markús frá Djúpalæk fór með Bertu konu sinni á kokteilbarinn Tipsy í Hafnarstræti um helgina þar sem þeir voru skömmuð eins og hundar...

SIGURÐUR INGI MEÐ NÝTT LÚKK – „HANN ER HOT“

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hefur aldrei litið betur út eftir að hann lét sér vaxa grásprengt alskegg og dressaði sig upp í svart....

SIGURBJÖRN Í KLÚBBNUM 100 ÁRA – MINNING AFASTRÁKS

Sverrir Einar Eiríksson, athfnamaður, gullsali, hótelhaldari, vínsali, veitingamaður ofl. minnist afa síns sem hefði orðið 100 ára í dag: - Í dag hefði afi minn, Sigurbjörn...

HARPAN HEILLAR – „ÞESSI FER Á JÓLAKORTIÐ Í ÁR“

Harpan komin í jólabúning og heillar ferðamenn. Líklega vinsælasta myndefnið sem þeim býðst í bænum og skákar þar með Hallgrímskirkju. Einn frá Japan tók þessa...

HÖFNUN ER BARA PRENTVILLA – GUÐMUNDUR ANDRI EKKI TILNEFNDUR

Guðmundur Andri Thorsson er ekki tilefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár og lætur um það falla nokkur orð: - "Einhvern tímann þegar bók eftir mig var...

ÁRSÆLL SKÓLAMEISTARI EKKI FÓRNARLAMB RÁÐHERRA

"Guðmundur Ingi átti ekki neinn skynsamlegan möguleika á að skipa Ársæl Guðmundsson til annarra 5 ára - án auglýsingar," segir Benedikt Sigurðarson þrautreyndur skólamaður,...

JÓLASTRESS ER GERVISTRESS

"Flest þurfum við minna áreiti og minni streitu í líf okkar. Því miður eru jólin tími mikillar streitu. Það eru þó ekki jólin sjálf...

RÚV VERÐUR RAUÐ EINS OG SÝN

Fréttatímar Ríkissjónvarpsins, íþróttir og veður eru komnir með rauðan bakrunn líkt og verið hefur hjá Sýn frá upphafi. Áður og lengi notaðist RÚV við...

BLÓÐSKORTUR Í FLOKKUNUM

Það vantar blóð í alla flokkana. Sjálfstæðisflokkinn, Miðfokkinn, Framsókn osfrv...

Sagt er...

Forseti Alþingis tilkynnti við upphaf þingfundar í morgun að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, yrði fjarverandi frá þingstörfum á næstunni. Athygli vekur að Þóra...

Lag dagsins

Lífskúnstnerinn Helgi Jean Claessen er afmælisbarn dagsins (44). Hann hefur marga fjöruna sopið en heldur upp á tímamótin með útgáfu bókar sem hann hefur...