Föstudaginn 18. júlí, verður haldið upp á Dag íslenska fjárhundsins á Árbæjarsafni. Hægt verður að heilsa upp á hunda og eigendur þeirra sem glaðir svara öllum spurningum um hinn íslenska fjárhund. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda..
Aðeins hundar sem taka þátt í kynningunni munu fá aðgang að safninu.









