„Svo vill til að í dag eru sex ár frá því ég bragðaði síðast áfengi. Þannig mjakast þetta, en risaskrefin felast í betri heilsu og heilbrigðara gildismati. Manni líður miklu betur,“ segir Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðla – og stjórnmálamaður:
„Mæli með þessu fyrir alla sem vilja vera meira til staðar fyrir það sem mestu máli skiptir og ná stjórn á eigin lífi. Það er aldrei of seint að horfast í augu við sjálfan sig og besta ákvörðun sem hægt er að taka. Með Guðs hjálp og góðra manna. Einn dag í einu.“