HomeGreinarHEIDI HJÁ ÓFEIGI

HEIDI HJÁ ÓFEIGI

Heidi Strand opnar sýningu á 20 nýjum textílverkum í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5, laugardaginn 7. júní kl. 14-16.

Heidi Strand er fædd í Noregi en hefur búið á Íslandi frá því um tvítugt. Hún var í listnámi í Noregi og náði þar fljótt góðum tökum á textil af ýmsu tagi.

Heidi hélt sína fyrstu einkasýningu í Ásmundarsal árið 1982. Síðan þá hefur hún haldið einkasýningar á Norðurlöndum öllum og þetta er þriðja árið í röð sem hún sýnir í Listhúsi Ófeigs við góðar undirtektir. Heidi hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum sam- og farandsýningum í bæði Evrópu, Bandaríkjunum og Japan, þar sem alþjóðlegar dómnefndir velja verkin, og hafa sumar þessara sýninga farið víða um lönd. Nú er í gangi farandsýning í Bandaríkjunum þar sem Heidi á verk.

Heidi hefur náð alveg sérstökum tökum á nálaþæfingu og í Listhúsi Ófeigs sýnir hún myndverk af ýmsum stærðum tengd íslenskri náttúru, bæði af kindum en ekki síður af fuglum sem hafa lengi verið henni hugleiknir. Öll verkin á sýningunni eru unnin í ár eða í fyrra.

Sýningin er opin á opnunartíma Gullsmiðju Ófeigs, á verslunartíma, virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16. Sýningin stendur til 30. júní nk. og er aðgangur ókeypis
.
Heidi er félagi í Textílfélaginu og SÍM auk bandarísku samtakanna SAQA.

TENGDAR FRÉTTIR

HUNDAR Í BÓNUS

Jónatan Hermannsson jarðræktarfræðingur og skáld birtir ljóð sín reglulega á samfélagsmiðlum. Yfirleitt tímabærar athugasemdir um lífið. Hér er "Hundar í Bónus: - fór í Bónus í...

LAMBALÆRI FRÁ KAUPFÉLAGI SKAGFIRÐINGA Á 3.000 KRÓNUR Á COSTA BLANCA

Íslendingar á Costa Blanca svæðinu á Spáni ganga nú að skagfirskum lambalærum í stórmörkuðum á aðeins 3.000 krónur íslenskar. Sama læri kostar ca. 12.000...

PISSUSKÁLAR Í RIGA

Kristinn Sigurjónsson verkfræðingur átti leið um flugvöllinn í Riga í Litháen og brá í brún þegar hann þurfti að létta af sér á vellinum: "Þessar...

ÁSGRÍMUR SLEGINN Á 8,7 MILLJÓNIR Á UPPBOÐI HJÁ FOLD

Olíumálverk eftir Ásgrím Jónsson var selt á 8,7 milljónir á uppboði hjá Gallerí Fold í gærkvöldi. Verðmat fyrir uppboðið var hærra - 10-12 milljónir. Myndin...

BORGARSTJÓRI HLÝDDI AGLI HELGA – SUMARBLÓMUNUM HLÍFT Á UMFERÐAREYJUM

Tilmæli Egils Helgasonar til borgarstjóra um að hætta að slá sumarblómin fögru á umferðareyjum í höfuðborginni virkuðu. Á gatnamótum Háaleitisbrautar og Stóragerðis nú síðdegis mátti...

FYRSTA KONAN SKIPUÐ REKTOR MH

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Helga er...

ORÐABÓK UM ÖLVUNARÁSTAND

Þessi listi með íslenskum orðum yfir ölvunarástand birtist í blaðinu Stormi 1933. Tólf árum síðar birtist þetta: Halldór Laxness skrifar grein - "Fylliraftarnir" þar...

GERVIGREINDIN LITAR GAMLAR LJÓSMYNDIR

Ingvar Víkingsson, grafískur hönnuðu frá Stykkishólmi, spurði gervigreindina hvort hún gæti litað gamla ljósmynd af sér frá 1977. Gaf upp litina á svart/hvítu myndinni;...

GRINDAVÍK GALOPIN

Lífið í Grindavík er að taka á sig fyrri mynd þó hægt fari. Flest fyrirtæki í gangi, fólk að snúa heim og auglýsingaherferð hafin...

SOKKUR DAGSINS

Þetta er sokkur dagsins. Liggur þétt að fæti, kuðlast ekki og andar á afláts. Virkar einnig sem inniskór. Fæst á Netinu.

EGILL SENDIR BORGARSTJÓRN TILMÆLI

Egill Helgason fjölmiðlastjarna sendir nýrri borgarstjórn tilmæli í þágu náttúrunnar og sparnaðar: "Hætta að slá gras sem er nýsprottið - með ærnum tilkostnaði. Ekki taka...

BILAÐ HEYRNATÆKI Á COSTA BRAVA

"Veit einhver hvar er hægt að láta að laga heyrnatæki?" spyr Rut Másdóttir íbúi á Costa Brava á Spáni á samfélagsveF Íslendinga sem þar...

Sagt er...

Vesturbæingur ætlaði að búa til omilettu fyrir sig og sína, teygði sig í nýjan eggjabakka í ísskápnum og tók þar fjögur egg sem öll...

Lag dagsins

24. maí 1961 tilkynnti John F. Kennedy, þáverandi forseti Bandríkjanna, að stefnt yrði að því að senda menn til tunglsins fyrir lok áratugsins. Það...