Í tilefni af Alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks bíður Árbæjarsafn til tónleika með gleðisveitinni Ukulellur laugardaginn 17. maí kl. 15 í Landakoti á Árbæjarsafni.
Ukulellur eru skemmtileg og dásamlega djörf hljómsveit samansett af nokkrum miðaldra hinsegin konum. Þær skemmta sér og öðrum með því að spila og syngja lög sem fjalla um líf og reynslu hinsegin fólks – oft með kaldhæðni og húmor sem hristir upp í ríkjandi viðmiðum og boxum samfélagsins.
Ókeypis inn – öll velkomin á meðan húsrúm leyfir!