Ríkisútvarpið tilkynnir:
–
Boga Ágústsson þekkja nánast allir landsmenn þar sem hann hefur birst á sjónvarpsskjám þeirra í tæpa hálfa öld. Hann les í kvöld sinn síðasta fréttatíma og kveður fréttastofu RÚV.
Farið verður yfir feril Boga í Kastljósinu eftir að hann lýkur sínum síðasta fréttalestri. Rætt verður við Boga sjálfan, marga af hans helstu samstarfsmönnum og fjölskyldu. Fréttalestur hefst að sjálfsögðu stundvíslega klukkan 19:00.