Halla Hrund Logadóttir fyrrum forsetaframbjóðandi og súparstjarna Framsóknarflokksins á Suðurlandi styður umdeild veiðigjöld ríkisstjórnarinnar sem í sigti eru. Halla Hrund segir í grein á á Vísi í morgun:
„Er sanngjarnt að greitt sé gjald fyrir notkun á sjávarauðlind þjóðarinnar? Já það er sanngjarnt. Auðlindagjöld sem nálgun í nýtingu takmarkaðra auðlinda er alþjóðlega viðurkennd leið og það er réttlátt að þjóðin fái arð af verðmætum náttúruauðlindum sínum líkt og fisknum í sjónum.
Þá er það næsta stóra spurning: Er svigrúm til að hækka veiðigjaldið? Já, það er svigrúm. Það er hins vegar mjög misjafnt eftir stærð útgerða, eðli vinnslunnar – og ekki sama hvernig það er útfært. Útfærslan hefur ólík áhrif á bæjarfélög og landshluta sem ríkisstjórninni ber skylda að horfa til.“