Tónlistarkonan Klara Einars verður andlit og talsmaður Pakkasöfnunar Kringlunnar í ár. Klara er að gefa út jólalagið „Handa þér” á streymisveitum, föstudaginn 22. nóvember og verður það einkennislag söfnunarinnar í ár. Markmiðið er að safna gjöfum fyrir börn og fjölskyldur sem búa við erfiðar aðstæður og gætu átt erfitt með að halda gleðileg jól. Klara og Kringlan vilja með þessu samstarfi hvetja fyrirtæki og einstaklinga til að leggja sitt af mörkum.