HomeGreinarVEISLAN HEFST Á MORGUN

VEISLAN HEFST Á MORGUN

Afmælistónleikar Helga Björns eru í Hörpu um helgina en Helgi þjófstartaði afmælinu í Hofi fyrr í haust.

„Við erum búin að vera að undirbúa þessa tónleika í meira en ár og viðtökurnar hafa farið fram úr væntingum. Nú er bara tilhlökkun og eftirvænting í hópnum. Það er yndislegt að fagna þessum tímamótum með þessum hætti,“ segir Helgi aðspurður út í stórtónleika helgarinnar en uppselt er á þrenna tónleika í Hörpu að undanskildum nokkrum sætum á föstudagstónleikanna.

Árið 1984 birtist Hið helga Bé sem fullsköpuð stjarna á himnafestingu íslenskrar rokktónlistar. 40 árum síðar hefur Helgi Björnsson gert heila þjóð að vini sínum, kynslóð fram af kynslóð. Jafnvel tíminn er vinur hans, enda hefur tíminn slípað þennan gimstein í áranna rás meðan Helgi hefur blygðunarlaust látið tímalausum perlum rigna yfir þjóð sem þyrstir eftir snertingu við hjartað. Íslendingum finnst þessi rigning góð og það rignir enn. Árið 2024 fögnum við 40 ára sígrænum ferli sem tímabundin trend ná aldrei að hagga. Maðurinn sem fer alla leið; jafnvígur á grátur, hlátur, öskur, stans, dans, stendur Hólí Bí á skýi og skýtur þig með ástarörvum í hjartað. Segðu já og við ríðum sem vindurinn í sumar og haust.

TENGDAR FRÉTTIR

PÁLL ÓSKAR MEÐ BARNAKÓR OG STUÐMÖNNUM Á ÁSTARTÓNLEIKUM Í LAUGARNESKIRKJU

Valentínusadeginum var fagnað glæsilega í Laugarneskirkju þar sem stórstjarnan Páll Óskar kom fram með barnakór kirkjunnar undir stjórn Þórunnar Grétu Sigurðardóttur sem er eiginkona...

LOKUÐU ÁLFAR REYNISFJÖRU?

"Einu sinni heyrði ég því fleygt að það væru álög á Reynisfjöru - að það væri álfakirkja í stuðlaberginu og álfarnir væru óánægðir með...

AFMÆLISBARN Í FORMANNSSLAG Í FRAMSÓKN

Ingibjörg Isaksen er er 49 ára í dag, sama dag og flokksþing Framóknarflokksins hefst á Hilton hótelinu í Reykjavík. Á þinginu tekst afmælisbarnið á...

GUNNI GLER YFIRGEFUR LAUGAVEGINN EFTIR 52 ÁR

Kaflaskil verða á Laugavegi 24 um mánaðarmótin þegar Gunnar Guðjónsson sjóntækjafræðingur lokar verslun sinni, Profil Optik, eftir 52 ára rekstur í götunni. "Mér tókst að...

ÓÐINN SVAN HÆTTIR Á RÚV

Snarpasti fréttamaður Ríkissjónvarpsins í háa herrans tíð, Óðin Svan Óðinsson, hefur ákveðið að yfirgefa stofnunina og segir: "Eftir tæp sjö ár hjá RÚV er nú...

PAVLOVA – FRÆGASTA TERTA Í HEIMI

"Anna Pavlova fæddist á þessum degi 1881. Trúlega væri nafn hennar á fárra vörum ef ekki hefði verið útbúin eftirréttaterta, sem kennd var við...

ÁSTARGANGA Í KIRKJUGARÐI Á VALENTÍNUSARDAGINN

Kirkjugarðar Reykjavíkur efna til Valentínusargöngu í Hólavallagarði á laugardaginn í tilefni dagsins - Valntínusardagsins. Þar verða sagðar ástarsögur sem gerst hafa í garðinum, rætt um...

BJÓ TIL GÚMMÍSKÓ Í 40 ÁR

Það var á Bergþórugötunni þar sem einu sinni var lítill skóvinnustofa og þar bjó hann Ólafur Benediktsson til gúmmískó í 40 ár. Hann talaði...

FJÖRFISKURINN Í FLOKKAFLÓRUNNI

"Það er alltaf gaman að Miðflokknum því þar á bæ leika menn óvæntu leikjunum, hann er fjörfiskurinn í flokkaflórunni, þar rísa hinir föllnu, blindir...

SAFNAR HUNDATEPPUM EFTIR AÐ HAFA VERIÐ VÍSAÐ ÚT AF KAFFI VEST

"Slíkur var glæpurinn að ég þurfti að vekja Tinna, þamba bjórinn og yfirgefa staðinn - með skottið á milli lappanna. Hef bara aldrei verið...

MIKAEL TORFASON SNÝR AFTUR MEÐ DIMMALIMM Í BÍÓ PARADÍS Í NÆSTU VIKU

Mikael Torfason rithöfundur, fyrrverandi ristjóri DV, Séð og heyrt, Fréttablaðsins ofl. hefur verið búsettur í Bandaríkjunum undanfarin ár og fengist við kvikmyndaskrif. Segir í...

OPIÐ MYNDSKEYTI TIL BORGARSTJÓRA

Í London eru frábærar almenningssamgöngur. Lestar ofanjarðar og neðanjarðar, metro strætóar, og rútur. Samt sem áður er gert ráð fyrir að hver fjölskylda fái...

Sagt er...

Þessi mynd af krörfuboltavelli inn í kletti í Færeyjum hefur flogið víða líkt og fiskisagan. En ekki er allt sem sýnist. Hafþór Bragason er frá...

Lag dagsins

Nú eru 62 ár síðan söngparið Peter & Gordon sendu frá sér lagið A World Without Love eftir Paul McCartney - Lennon-McCartney voru þó...