HomeGreinarGALLABUXUR VALDA GEGGJUN - GO, JOHNNY GO!

GALLABUXUR VALDA GEGGJUN – GO, JOHNNY GO!

Fréttir af gallabuxum Jóns Gnarr í þingsal Alþingis hafa valdið gamalkunnugum usla. Þetta hefur gerst víðar og oftar eins og Sveinn Markússon járnlistamaður í Hafnarfirði rifjar upp:

Johnny Cash hélt tónleika í Stavanger í Noregi árið 1985. Bjó hann á flotta hótelinu niður í miðbæ ásamt stórsveit og staffi, öll klædd pressuðum gallabuxum, Nashville style, og ætlaði hópurinn inn á píanóbar hótelsins eftir tónleika.
„Snyrtilegur klæðnaður“ stóð á skilti við glerhurð við klaverbarinn og dyravörður, siðgæðisvörður, kvöldsins sá þetta denim klædda gengi, klætt í baðmullar duck síðbuxum, orðið doek er úr flæmsku, og meinaði þeim inngöngu!
Uppnám varð meðal sveitarmeðlima og hótelgesta sem þekktu Cash, og vildi Johnny kalla til konung lýðveldisins.
Hótelstjórinn mætti á staðinn og breytti, hviss, bang, búmm klæðareglum hótelsins, og Cash og félagar fengu að ganga inn í herlegheitin og fá sér sjúss.
Ég þá á nítjánda ári, farandverkamaður, naut góðs af. Píanóbarinn var minn, og ég, ávallt klæddur í mínar slitnu Levis 501.
Go, Johnny Go!
TENGDAR FRÉTTIR

MESSI Á SAMA MATARÆÐI OG JÓNAS KRISTJÁNSSON

Áfengi, sykur og hvítt hveiti er á bannlista Lionels Messi en mataræði hans er í grundvallaratriðum það sama og Jónas Kristjánsson læknir boðaði fyrir...

„ÞAÐ ER BARA AF ÞVÍ AÐ ÞÚ HEFUR EKKI NÓG AMFETAMÍN“

Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur minnist vinar síns, Megasar, á kjarnyrtan hátt eins og henni er lagið: "Magnús Þór allur. Margs að minnast, alveg frá því um...

FJÁRMÁLARÁÐHERRA FER ÚR JAKKAFÖTUNUM

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er alltaf í jakkafötum. Þjóðin þekkir hann ekki öðruvísi. En nú er hann kominn í sumarfrí og hefur alveg skipt...

ÍSLENSKA VIÐSKIPTAMÓDELIÐ

"Íslenska viðskiptamódelið; kaupa upp öll fyrirtæki í sama rekstri til að tryggja fákeppni, hækka verð og reka fólk," segja þeir á kaffihúsunum á Skólavörðustíg. Sjá...

HUGO BOSS

Fæðingardagur þýska klæðskerans og tískukóngsins Hugo Boss (1885-1948). Hann vann náið og mikið með þýska Nasistaflokknum í síðari heimsstyrjöldinni, hannaði einkennisbúninga hermanna og stormsveita...

DJÚSARINN Á ÁVAXTABARNUM

Djúsari sendir myndskeyti: - Djúsarinn brá sér á ávaxtabarinn, borgaði 500 krónur fyrir 10 ávexti og nýja safapressan tilbúin að pressa. Hollara og ódýrara getur það...

BELJANDI FOSS Í STÚKUNNI Í LAUGARDAL

Arkitektinn AI, sjá hér, heldur áfram tilraunum sínum til bjargar stúkunni í Laugardalslaug frá niðurrifi. Nýjasta útgáfan er beljandi foss sem endar i lauginni...

HM KJÓLARNIR KOMNIR

"Þetta eru liðin sem við spáðum áfram og þau eru núna komin í 16 liða úrslit," segja kaupmennirnir í Kjólar & konfekt á Laugavegi...

STÚKUNNI Í LAUGARDAL BREYTT Í PIKNIK SVÆÐI

Arkitektinn AI sendir myndskeyti: - Tillaga að hugmynd að breyta Laugardalsstúkunni í piknik svæði. Með litlum svölum til útivistar þar sem fólk gæti komið með hressingu....

NÝR FÁNI EFTIR JÁKVÆÐA KOSNINGU

Svona gæti nýr íslenskur fáni litið út eftir jákvæða þjóðaratkvæðagreiðslu. Reyndar er þetta þjóðfáni Grænhöfðaeyja en kannski mætti gera skiptidíl...

STÚKA LAUGARDALSLAUGAR AÐ HRUNI KOMIN

Glæsileg stúka Laugardalslaugarinnar er að hruni komin sökum viðhaldsleysis. Einu mesta bæjarprýði Reykjavíkur hefur ekki verið sinnt sem skyldi í 60 ár. Fimm pottar...

MOKAÐ MEÐ TESKEIÐUM Á LAUGAVEGI

Mokað með teskeiðum á Laugavegi 1. Nýr grunnur að tveggja hæða húsi sem á eftir að sóma sér vel í þéttingu Reykjavíkurborgar.

Sagt er...

"Alltaf fær maður eitthvað," sagði kvikmyndajöfurinn Friðrik Þór Friðriksson í veiðitúr í fyrra.

Lag dagsins

Ari Edwald, fyrrum forstjóri stórfyrirtækja, lögfræðingur, viðskiptafræðingur og nú oddviti Miðflokksins í Reykjavík, er afmælisbarn dagsins (62). Hann fær óskalagið "Aravísur" með Ingibjörgu Þorbergs. https://www.youtube.com/watch?v=iSEdmD79_p8&t=12s