HomeGreinar80% AF VÖRUNUM EKKI TIL Í IKEA

80% AF VÖRUNUM EKKI TIL Í IKEA

Skeyti úr eldhúskróknum

Ég er að setja upp eldhús úr einingum frá IKEA og er alveg að brjálast yfir því að stór hluti af innvolsinu er ekki til á lager hjá fyrirtækinu. Eldhúsið er hálfklárað og verður það næstu vikur eða mánuði. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem ég rek mig á að það eru aðallega sýnishornin sem virðast í raun og veru til.
Ég er með Maximera skúffur og fljótleg talning á vefsíðu IKEA sýnir að af 75 einingum í þessari línu eru aðeins 15 þeirra til á lager. Allt hitt er sagt uppselt – það eru 80% af vörulínunni.
Hreinlega óskiljanlegt að þessi stærsta húsgagnaverslun landsins – og reyndar sú stærsta í heimi – skuli ekki hafa betri lagerstöðu en þetta. Maður gefst upp á að versla þarna.
TENGDAR FRÉTTIR

PISSUSKÁLAR Í RIGA

Kristinn Sigurjónsson verkfræðingur átti leið um flugvöllinn í Riga í Litháen og brá í brún þegar hann þurfti að létta af sér á vellinum: "Þessar...

LAMBALÆRI FRÁ KAUPFÉLAGI SKAGFIRÐINGA Á 3.000 KRÓNUR Á COSTA BLANCA

Íslendingar á Costa Blanca svæðinu á Spáni ganga nú að skagfirskum lambalærum í stórmörkuðum á aðeins 3.000 krónur íslenskar. Sama læri kostar ca. 12.000...

ÁSGRÍMUR SLEGINN Á 8,7 MILLJÓNIR Á UPPBOÐI HJÁ FOLD

Olíumálverk eftir Ásgrím Jónsson var selt á 8,7 milljónir á uppboði hjá Gallerí Fold í gærkvöldi. Verðmat fyrir uppboðið var hærra - 10-12 milljónir. Myndin...

BORGARSTJÓRI HLÝDDI AGLI HELGA – SUMARBLÓMUNUM HLÍFT Á UMFERÐAREYJUM

Tilmæli Egils Helgasonar til borgarstjóra um að hætta að slá sumarblómin fögru á umferðareyjum í höfuðborginni virkuðu. Á gatnamótum Háaleitisbrautar og Stóragerðis nú síðdegis mátti...

FYRSTA KONAN SKIPUÐ REKTOR MH

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Helga er...

ORÐABÓK UM ÖLVUNARÁSTAND

Þessi listi með íslenskum orðum yfir ölvunarástand birtist í blaðinu Stormi 1933. Tólf árum síðar birtist þetta: Halldór Laxness skrifar grein - "Fylliraftarnir" þar...

GERVIGREINDIN LITAR GAMLAR LJÓSMYNDIR

Ingvar Víkingsson, grafískur hönnuðu frá Stykkishólmi, spurði gervigreindina hvort hún gæti litað gamla ljósmynd af sér frá 1977. Gaf upp litina á svart/hvítu myndinni;...

GRINDAVÍK GALOPIN

Lífið í Grindavík er að taka á sig fyrri mynd þó hægt fari. Flest fyrirtæki í gangi, fólk að snúa heim og auglýsingaherferð hafin...

SOKKUR DAGSINS

Þetta er sokkur dagsins. Liggur þétt að fæti, kuðlast ekki og andar á afláts. Virkar einnig sem inniskór. Fæst á Netinu.

EGILL SENDIR BORGARSTJÓRN TILMÆLI

Egill Helgason fjölmiðlastjarna sendir nýrri borgarstjórn tilmæli í þágu náttúrunnar og sparnaðar: "Hætta að slá gras sem er nýsprottið - með ærnum tilkostnaði. Ekki taka...

BILAÐ HEYRNATÆKI Á COSTA BRAVA

"Veit einhver hvar er hægt að láta að laga heyrnatæki?" spyr Rut Másdóttir íbúi á Costa Brava á Spáni á samfélagsveF Íslendinga sem þar...

GERVIGREINDIN ÓGNAR FASTEIGNASÖLUM

Reykvískur íbúðaeigandi í 101 var að íhuga að selja og flytja sig um set og datt í hug að spyrja gervigreindina hvernig staðan væri...

Sagt er...

Vesturbæingur ætlaði að búa til omilettu fyrir sig og sína, teygði sig í nýjan eggjabakka í ísskápnum og tók þar fjögur egg sem öll...

Lag dagsins

24. maí 1961 tilkynnti John F. Kennedy, þáverandi forseti Bandríkjanna, að stefnt yrði að því að senda menn til tunglsins fyrir lok áratugsins. Það...