HomeSagt erFÆREYSKU HÚSIN Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG

FÆREYSKU HÚSIN Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG

Helena Sivertsen opnar sýningu sína Húsin í Færeyjum laugardaginn 2. ágúst kl. 13:00–15:00 í Listhúsi Ófeigs. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Sýningin samanstendur af olíumálverkum þar sem Helena fangar stemninguna og minningarnar úr æsku sinni í Færeyjum. Hún er fædd árið 1970 og ólst upp í einu af þessum sérkennilegu og litríkum húsum, þar til hún var níu ára. Hún sótti þó reglulega heim til æskuslóða sinna alla tíð. Helena flutti til Íslands árið 1993 og hefur búið í Reykjavík síðan.

Helena hefur sótt fjölda listnámskeiða, bæði í Færeyjum og á Íslandi. Hún lauk tveggja ára námi við Myndlistaskólann í Reykjavík árið 2018 og hefur einnig stundað nám við Myndlistarskóla Kópavogs.

Sýningin stendur til 27. ágúst. Helena rekur einnig vinnustofuna Nalla Art á 2. hæð í Suðurveri. Þar má sjá fleiri verk hennar á veggjum og er gestum velkomið að skoða vinnustofuna eftir samkomulagi.
TENGDAR FRÉTTIR

ÞEGAR SÓLIN HVERFUR

Þar sem iðaði allt af lífi í gær. Þegar sólin hverfur, hverfur fólkið. Ó, blessuð vertu sumarsól, er sveipar gulli dal og hól og gyllir fjöllin himinhá og...

SÉRA FRIÐRIK HREINSAÐUR Á MÁLÞINGI

Um helgina var var haldið málþing  Æruverndar um málefni Sr. Friðriks Friðrikssonar í Seltjarnarneskirkju sem var fjölsótt. Niðurstaðan var þessi: "Eftir faglega umfjöllun var niðurstaða...

SIGURÐUR INGI BRENNDI GÖMLU JAKKAFÖTIN Á AFMÆLISDEGINUM

"Undanfarnir mánuðir hafa verið tími breytinga - í gær náði ég þeim merka áfanga að verða 64," segir Sigurður Ingi Jóhannsson fyrrum forsætisráðherra og...

KAFFISTOFA SAMHJÁLPAR Í HEGNINGARHÚSIÐ

"Það virðist sem deilur um staðsetningu kaffihúss Samhjálpar stefni í að verða eitt af kosningamálunum," segir Bjarni Þorsteinsson ritstjóri og útgefandi sem fékk hugmynd...

ER KÚL AÐ FÁ SÉR MÖNDLUMJÓLK?

„Er möndlumjólk á leiðinni út?“ spur Guðmundur Franklín athafnaskáld og fyrrum forsetaframbjóðandi og heldur áfram: – Svo í stað þess að toga í spena í þrjátíu...

TAFLMENN Á LEIÐI SKÁKMEISTARA

Fréttahaukur á leið um Flóa kom við í Laugadælakirkjugarði þar sem skákmeistarinn Bobby Fischer hvílir. Þar sá hann frétt. Kóngi, biskup og peði hafði...

ADHD LJÓÐ Á LAUGARDEGI

ég lærði að ganga tala lesa skrifa og reikna - en aldrei að vinna með mig - ég þjáist rek mig á veggi - ofvirkur brotinn adh eitthvað ruglaður - lendi í ekki mér að kenna - lífið líður hjá orka kraftar hæfileikar - á móti ekki með - ég lærði að ganga tala lesa skrifa og reikna - en aldrei á...

RAUÐSOKKUSTYTTA Í HLJÓMSKÁLAGARÐINN

Að tillögu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra verður minnismerki um kvennabaráttuna reist í Hljómskálagarðinum. Mun það styðja við sjálfsmynd Reykjavíkurborgar sem jafnréttisborg, heiðra sögu og...

FÖLSUÐ HEYFILSMERKI Á LEIGUBÍLUM VIÐ LEIFSSTÖÐ

"Þegar við kom heim frá Spáni um daginn tókum við Hreyfils leigubíl með gula merkinu í framrúðunni," segir Örn Garðarsson, áður landsþekktur veitingamaður sem...

HAFNFIRSKIR ÖLDUNGAR VILJA ÚTSÝNI ÚR HEITU POTTUNUM

Öldungaráð Hafnarfjarðar vill að steyptur veggur sem snýr að sjónum á útisvæði Sundhallar Hafnarfjarðar verði tekinn niður og glerveggur settur upp í staðinn til...

TRÚNAÐARBRESTURINN Í FLOKKI FÓLKSINS – INGA SÆLAND SETTI SON SINN Í STÖRF GUÐMUNDAR INGA

Nú er komið í ljós hver trúnaðarabresturinn í Flokki fólksins var þegar Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður flokksins og ráðherra, sneri aftur eftir alvarlega hjartaaðgerð...

ÆRUVERND SÉRA FRIÐRIKS Í SELTJARNARNESKIRKJU

Félagið Æruvernd gengst fyrir málþingi í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 19.apríl kl. 14 síðdegis undir heitinu „Hvað er sannleikur? Æruvernd og dómstóll samfélagsmiðla.“ Á málþinginu verður fjallað...

Sagt er...

Stóri Plokkdagurinn verður haldin hátíðlegur á sunnudaginn og er hitað upp með stóra Plokklaginu þar sem Diddú og Hafdís Huld eru forsöngvarar. https://www.youtube.com/watch?v=sr7IHi1E3bs

Lag dagsins

Friðrik Brekkan lífskúnstner og leiðsögumaður, er afmælisbarn dagsins (75). Friðrik hefur sérstaka perónutöfra sem hafa nýst honum vel í návist mestu valdamanna heims jafnt...