HomeGreinarSÁPUÓPERA TRUMPS MEÐ AUGUM FRIÐRIKS INDRIÐA

SÁPUÓPERA TRUMPS MEÐ AUGUM FRIÐRIKS INDRIÐA

Friðrik Indriðason blaðamaður birti vangaveltur um fyrri forsetatíð Trumps forseta fyrir sjö árum – og þetta hefur elst vel. Sápuóperan heldur áfram og virðist aldrei ætla að hætta frekar en Dallas í sjónvarpinu.

Ég held að ég sé búinn að átta mig á Trump forseta Bandaríkjanna. Hann ákvað strax að breyta embættinu í einn humungus raunveruleikaþátt þar sem hann er enn í hlutverkinu „þú ert rekinn“. Og þetta alveg svíngengur. Heimurinn fylgist með hverjum þættinum á fætur öðrum sem yfirstíga allt annað, hvort sem er sápuópera, mafíumyndir eða survivor.
Lítum á sviðið eins og það er núna. Persónulegur lögmaður Trumps, Cohen að nafni og oft kallaður consiglore fyrir Donald, er í vandræðum fyrir héraðsdómi í New York. Hann borgaði klámdrottningunni Stormy Daniels buns af money til að halda kjafti um að dóninn er frekar slappur í rúminu. Þetta leiddi til þess að FBI kom með svona no knock heimild inn á alla íverustaði hans í New York og hirti öll gögn. Í ljós kemur að Cohen var bara með tvo aðra kúnna. Einhvern fjármálatopp fyrir Rebúblikanaflokkinn auk stærstu stjörnu Fox sjónvarpsstöðvarinnar. Cohen greiddi Playboy kanínu buns af money til að fara í fóstureyðingu eftir að fjármálatoppurinn barnaði hana. Og nú er önnur Playboy kanína, sem lögsótti Trump í öðru óskyldu máli, búin að fá heimild dómara til að segja sína sögu af ástarsambandinu með honum n.b. meðan hann var harðgiftur.
Eins og einn bandarískur blaðamaður orðaði það…“ég er bara feginn að Heff er látinn svo hann þurfi ekki að sjá ævistarf sitt dregið í gegnum svaðið á þennan hátt.“ Til að toppa þetta allt má nefna að Kimba Wood, dómarinn í máli Cohen í New York, vann eitt sinn sem Playboy kanína í London. stay tuned man,,,
Það nýjasta er að Trump hefur ákveðið að kalla skúrkinn úr fyrsta þætti aftur inn, svona í ca. miðjan fimmta þátt þar sem við erum núna. Jeps Rudy Guiliani er mættur aftur. Maðurinn sem fær raðfullnægingu ef hann veit af sjónvarpsvél í 5 metra fjarlægð. Hann segist ætla að redda vandamálum Trumps á ca. einni til tveimur vikum.
En hvað um það, ég hef nokkuð gaman að þessu.

 

TENGDAR FRÉTTIR

FIMMA SÉRA PÉTURS – AFMÆLISBOÐ

Pétur Þorsetinssin fyrrum prestur Óháða safnaðarins verður 71 árs 5. maí og fimman er honum hugleikin eins og fram kemur í afmælisboðskorti hans: "Þann fimmta...

ER STJÓRNARSKIPIÐ STRAND?

„Er stjórnarskipið strand?“ spyr Hrannar Björn Arnarsson framkvæmdastjóri ADHD samtakanna og eiginmaður borgarstjóra en aðalfundur samtakanna ályktaði um stöðu mála. Þar er kallað eftir...

ÁSTFANGNAR Í 32 ÁR

Í dag er hátíðsdagur hjá Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Ragnhildi Sverrisdóttur. Ráðherrann smellti af lyftumynd í tilefni dagsins og segir: "Ég eignaðist kærustu fyrir...

FRIÐRIK HITTI SVÍAKONUNG Í SPORVAGNI Í GAUTABORG FYRIR 48 ÁRUM

"Þann 26. október 1978 þegar ég var í námi og starfi í Gautaborg tók ég sporvagn frá miðborg Gautaborgar upp til úthverfisins Angered til...

BRYNJAR ÓÁNÆGÐUR MEÐ NÝJA BÍLINN

"Nú er ég kominn á nýjan bíl," segir Brynjar Níelsson og er alls ekki ánægður með hann: - "Stöðugar athugasemdir um aksturslag mitt með háværu pípi,...

AFI BJARGAR – DAVÍÐ SCHEVING

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í væntanlegum borgarstjórnarkosningum er barnabarn athafnamannsins og iðnrekandans Davíðs Schevings Thorsteinssonar (1930-2022). Íslendingar geta þakkað Davíð Scheving fyrir bjórinn þegar...

GEGGJUN Í GUFUNESI

Þessi kaldranalega mynd birtist með frétt á vefnum grafarvogur.net sem fjölmiðlamaðurinn Jón G. Hauksson rekur. - "Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir, eigendur Loftkastalans í...

FLJÓTANDI GUFUBAÐ Í FJALLABYGGÐ

"Verkefnið okkar er að setja niður fljótandi gufubaðsklefa á Ólafsfjarðarvatn í landi Brekkulands. Við teljum að þetta verði frábær viðbót við fjölbreytt úrval heilsu-...

LAUFEY OG JÚNÍA 54 ÁRA SAMTALS

Stórstjarnan Laufey Lin og tvíburasystir hennar, Júnía Lin, áttu afmæli síðastliðinn fimmtudag, 23. apríl - 27 ára. Samtals 54 ára eins og sést á...

„ÁFRAMHALDANDI STERK STAÐA REYKJAVÍKURBORGAR“

Ársreikningur Reykjavíkurborgar lagður fram. Í tilkynningu frá borginni segir meðal annars: - Áframhaldandi sterk staða Reykjavíkurborgar ...rekstrarniðurstaða A- og B- hluta er jákvæð um 8 milljarða króna...

BUBBABÚÐ Á NETINU

Bubbi Morthens hefur opnað vefverslun í tilefni af afmælistónleikum sínum í Laugardalshöll í júní þegar hann verðir sjötugur. Vefverslun Bubba byður upp á allskyns sérmerktan...

AUÐUR JÓNS SRIFAR ÆVISÖGU INGIBJARGAR SÓLRÚNAR

Auður Jónsdóttir rithöfundur vinnur nú að ritun ævisögu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrum untanríkisráðherra, borgarstjóra og formanns Samfylkingarinnar. Verkið er komið á veg en löng...

Sagt er...

Á Matkránni í Hveragerði, frænku Jómfrúarinnar í Lækjargötu, kalla þjónarnir pipar og salt staukana Pétur og Stefán. Skemmtilegir þjónar.

Lag dagsins

Hún hefur borið eins og gull af eiri í borgarstjórn, afmælisbarn dagsins, Sunna Magdalena (34). Hagar sér og talar á hreinskiptari hátt en aðrir...