„Stundum þarf maður að kveikja á perunni. Þarna er verið að plata neytendur,“ segir viðskiptavinur Krónunnar á Hallveigarstíg sem greip með sér eina peru í innkaupum enda hilluverð gott – 55 krónur stykkið.
Þegar hann kom heim sá hann á nótunni að peran hafði hækkað í verði frá hillu að kassa þar sem hún kostaði allt í einu 169 krónur!