Svona er biðröðin fyrir framan Sandholt bakarí á Laugavegi alla morgna upp úr hálf átta. Árrisulir túristar sem vilja morgunkaffið sitt snemma bíða rólegir eftir afgreiðslu enda ekki í mörg kaffihús að venda svo snemma. Nema kannski Kaffifélagið á Skólavörðustíg sem líka opnar hálf átta en þar eru Íslendingar fyrirferðarmeiri. Og bakkelsi á borðum.