Brauð og Co hefur opnað í Austurstræti ferðamönnum til ánægju enda fá þeir þar ódýrasta hádegismat miðbæjarins: Snúð og kókómjólk á 1.100 krónur. Bragðgott og fyllir vel.
Má búast við biðröðin þarna fari að teygja sig og jafnvel sameinast biðröðinni hjá Bæjarins bestu á næsta horni sem býður pylsu og kók á svipuðu verði.
Brauð & Co auglýsir djarft í Austurstræti: LIFE iS PAIN – au chocolat.