„Eldgömul teikning af senu á Skólavörðustíg. Ég veit ekki með þig en mér finnst hún ennþá fyndin,“ segir listamaðurinn Lóaboratoríum.
Á Skólavörðustíg drekka fastagestir morgunkaffi sitt eldsnemma á virkum dögum á tveimur kaffihúsum sem standa nánast gegnt hvort öðru í götunni. Á Kaffifélaginu er oft fjölmenni þar sem fólk toppar hvort annað með óheyrðum tíðindum og skýringum og verður þar stundum ærslagangur. Á Mokka eru færri á þessum tíma og þar hugsa menn sitt ráð í hljóði.