HomeGreinarTAXI PIKKFASTUR Í FORNÖLD

TAXI PIKKFASTUR Í FORNÖLD

„Íslenski leigubílamarkaðurinn var einfaldlega pikkfastur í örgustu fornöld, og stór hluti hans er það því miður enn,“ segir Pawel Bartoszek í borgarsstjórnarhópi Viðreisnar og heldur áfram:
„Fornöld þar sem kúnninn veit ekki hvað ferðin mun kosta þegar hann pantar hana. Sem þætti óboðlegt flestum öðrum viðskiptum.
Fornöld þar sem þú þarft að hringja í símanúmer, bíða, og veist ekkert hvenær bíllinn kemur.
Fornöld þar sem sá sem keyrir bílinn á erfiðasta vinnutímanum þarf oftar en ekki að fá lánað „leyfið“ frá einhverjum sem hefur haft leyfið svo áratugum skiptir. Fullkomlega óþarft kvótakerfi.
Fornöld þar sem kúnninn þarf allt of oft að sitja undir óumbeðnum ræðum frá bílstjórunum hitt og þetta. Læknum, hárskerum og þjónum á veitingastöðum tekst alveg að vinna sína vinnu án þeir upplýsi viðskiptavini sína um skoðun sína á útlendingamálum eða göngugötum…
Öpp á borð við Uber, Lyft eða Bolt hafa verið að svara þessum þörfum og umkvörtunum neytenda. Það er vandamálið sem þau hafa verið að leysa. Ég myndi aldrei aftur stíga um borð í leigubíl erlendis þar sem ég veit ekki lokaverðið.“
TENGDAR FRÉTTIR

ÍSLENSKAR PYLSUR Í NEW YORK TIMES

Ítarleg grein um íslenska pylsumenningu birtist í New York Times í gær undir fyrirsögninni "Inflation Hit Iceland Hard. Even It Beloved Hot Dog" -...

1. APRÍL Í BÓNUS

Nú getur þú loksins fengið íslenskt loft í Bónus. Takmarkað magn í boði.

PRETTY IN PINK

Ásdís Rán er líka komin í bleikan pels eins og Steinunn Ólína hefur verið að flagga á samfélagsmiðlum. Báðar voru þær í forsetaframboði fyrir...

SMÁRÍKIÐ VIÐ HLIÐ BÓNUS Á GRANDA

Smáríkið er að gera klárt fyrir að opna á Granda, á besta stað við hliðina á Bónus. Sagt er að Vínbúð ríkisins hafi stefnt...

ELÍSABET KLIPPIR Í HOLLYWOOD

Það segir sitt um hve langt Elísabet Ronaldsdóttir (60) er komin í Hollywood þegar nafn hennar birtist sem klippari einnar nýjustu bíómyndarinnar á Netflix,...

FÉ HEFUR HÆGÐIR

"Peningar eru eins og skítur: Þeir valda vexti og grósku ef vel er úr dreift, ef ekki sviðnar jörðin undan þeim og það er...

KONA Í RÖNDÓTTUM SUNDBOL – HVENÆR FARA EINHLEYPIR MENN Í SUND?

Rúmlega fertug kona, nýflutt aftur í vesturbæinn, birtir færslu á Vesturbæjarvefnum undir dulnefni og tekur fram að vonandi sé eftirfrandi ekki óviðeigandi: "Nenni ekki mikið...

BERGDÍS SENDIHERRA Í KÍNA

Bergdís Ellertsdóttir, þrautreyndur dipómat, er á leið til Kína til að taka við sem sendiherra Íslands þar. Sendiherraembættið í Peking er orðið eitt það...

VALUR Í VANDRÆÐUM

"Kæru vinir!" segir Valur Gunnarsson rithöfundur í pósti á samfélagsmiðlum en en Valur lenti í slysi og hrakförum í Afríku eins og hér var...

BLEIKA ÆÐIÐ

Bandaríski rapparinn Jaden Smith klæddist bleikri loðkápu á Tískuvikunni í París á dögunum. Þessa kápu kannast Íslendingar við af myndum sem leikkonan Steinunn Ólína...

62% MINNI UMFERÐ Í MORGUN

Heildarfjöldi ökutækja á höfuðborgarsvæðinu á alls 110 talningarstöðum þegar skoðaður er fjöldi frá miðnætti til hádegis sýnir að umferðin er 62% minni samanborið við...

FRJÓSEMI BERGLJÓTAR

"Ég veit ekki hvaða frjósemi er í gangi í kringum mig." segir listakonan Bergljót Arnalds og veit varla hvað hún á að halda: - "Ég fékk...

Sagt er...

Það er kominn sumartími í Danmörku og þá lítur klukkan svona út.

Lag dagsins

Ali MacGraw er afmælisbarn dagsins (87) - unga stúlkan úr stórmyndinni Love Story. Titillagið fór eins og eldur um sinu um heiminn hér í...