HomeGreinarKARL ÁGÚST HÆTTUR AÐ FYLGJAST MEÐ FRÉTTUM - HENTAR HONUM PRÝÐILEGA

KARL ÁGÚST HÆTTUR AÐ FYLGJAST MEÐ FRÉTTUM – HENTAR HONUM PRÝÐILEGA

Karl Ágúst
Karl Ágúst

„Nú eru umtalsverðir áratugir síðan ég samdi og flutti þetta atriði í Áramótaskaupi. Þá fannst mér það fjölmiðlafár og – della sem ríkjandi var skrambi hlægileg og eiginlega svolítið ógnvekjandi,“ segir spaugstofumaðurinn Karl Ágúst Úlfsson og lætur hugann reika:

„Ekki gat mig grunað að fáeinum árum seinna ætti ég ekki annarra kosta völ en að fylgjast óhemjulega náið með öllum fjölmiðlum landsins svo engin einasta frétt eða viðburður færi framhjá mér. Og þið megið giska á ástæðuna fyrir því.
Þetta hlægilega og ógnvekjandi settist sumsé að í heilabúinu og þar með líka ljóðlínan „Ég er að missa vitið.“ Ég missti kannski ekki vitið – ekki alveg og ekki endanlega – en ég hef grun um að fjölmiðlayfirlegan hafi skaðað mig á ýmsan hátt, líkamlegan og andlegan, sem ég ætla ekki að ræða frekar hér og nú.
En nú er ég sumsé nánast hættur að fylgjast með fréttum. Af og til fæ ég mína nánustu til að endursegja mér helstu tíðindin af pólitík, samfélagi og umheimi. Við veltum þeim kannski fyrir okkur saman svolitla stund og leiðum svo talið að öðru. Skömmu síðar er ég yfirleitt búinn að gleyma því hvað sé að frétta. Það hentar mér alveg prýðilega.“
TENGDAR FRÉTTIR

SVESKJUR UPPSELDAR Í REYKJAVÍK

Eldri borgara í matarinnkaupum í Reykjavík vantaði sveskjur í grautinn. Þær voru ekki til í fimm matvöruverslunum sem hann leitaði til. Hann spurðist fyrir...

LEIÐRÉTTING: SANTE FALSAÐI BJÓRAUGLÝSINGU Í NAFNI VIÐREISNAR

Fyrir nokkrum dögum birtist hér frétt af bjórauglýsingu sem merkt var Viðreisn. Nú hefur komið í ljós að auglýsingin var frá vinsölunum í Sante...

BARA 60 Í SUNDHÖLLINNI Í EINU

Sundhollin við Barónsstíg var lokað af og til í gær vegna álags en aðeins 60 hleypt inn í einu. Olli þetta furðu margra gesta. -

KATTÞRIFINN KÖTTUR Í SUNDI

Þessi rauðbrúni köttur er orðinn eins og fastagestur í Vesturbæjarlauginni, mætir á hverjum degi um þrjúleytið og horfir löngunaraugum á innganginn. En lætur þar...

FRESTAÐI SJÖTUGSAFMÆLINU UM ÞRJÁ MÁNUÐI EFTIR INNTÖKU Á NAD+

Lífsþyrstur íbúi í 101 Reykjavík, hugmyndaríkur og snjall, frestaði sjötugsafmæli sínu, sem átti að vera eftir nokkta daga, um þrjá mánuði, Ástæðan er inntaka...

DORRIT SLEIKIR SÓLINA Í SKUGGA SKILNAÐAR

Dorrit Moussaieff nýtur lífsins á grísku eyjunni Mykonos með vinum sínum í skugga skilnaðar við Ólaf Ragnar sem á meðan berst gegn yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu...

LAUGABÚÐ Á EYRARBAKKA TIL SÖLU

Það fer nú að líða að því að hið sögufræga hús Sjónarhóll – Eyrargata 46 – á Eyrarbakka, Laugabúð, verði auglýst til sölu. Ekki...

NO PARKING

Þetta merki þýðir "Bannað að leggja" á öllum tungumálum, jafnvel esperanto. Ökumaður þessa ferðabíls kaus þó að leggja honum í lítilli þvergötu í miðbæ...

RÁÐHERRAHJÓN Á ÍSLENDINGASLÓÐUM Í KANADA

Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra hefur undanfarna daga verið í opinberri heimsókn á Íslendingaslóðum í Kanada ásamt eiginkonu sinni, Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttir, sem...

INGA SÆLAND ELDRI BORGARI – 67 ÁRA Í DAG

Inga Sæland mennta-og barnamálaráðherra er 67 ára í dag og því orðin eldri borgari með öllu sem því fylgir. Inga er fædd árið 1959 á...

SMURSTÖÐVAR LEGGJA UPP LAUPANA VEGNA RAFBÍLA

Minnst þrjár smurstöðvar hafa lagt upp laupana í Reykjavík á síðustu mánuðum. Sú fjórða lokar eftir sumarfrí starfsmanna sem hófst um helgina en það...

PENINGAR TIL SÖLU Í KÓPAVOGI

Hægt er að kaupa gamla, íslenska seðla í Antikbúðinni í Auðbrekku 4 í Kópavogi. Það er hins vegar ekki hægt að kaupa neitt fyrir...

Sagt er...

"Þegar maður á gamlan bílskrjóð veltir maður því stundum fyrir sér hvað maður tímir að eyða miklu í hann. Hvað er maður reiðbúinn til...

Lag dagsins

Sólmyrkvinn að bresta á en alnyrkvi getur líka lagst yfir hjartað eins sog Bonnie Tyler syngur hér um. https://www.youtube.com/watch?v=lcOxhH8N3Bo&t=3s