Lagður verður blómsveigur frá Reykvíkingum að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í tilefni kvenréttindadagsins sem erí dag. Athöfnin hefst klukkan 11.00 með tónlistarflutningi í Hólavallakirkjugarði.
–
Dagskrá:
11.00 – Tónlist – Þórdís Petra Ólafsdóttir.
11.05 – Álfrún Hanna Gissurardóttir og Lóa Björk Gissurardóttir afhenda Þórdísi Lóu
Þórhallsdóttur, forseta borgarstjórnar, kransinn og hún leggur hann á leiðið.
11.10 – Ávarp forseta borgarstjórnar.
11.20 – Tónlist – Þórdís Petra Ólafsdóttir.
11.30 – Dagskrá lokið.
–
Bríet Bjarnhéðinsdóttir átti ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og efla
þannig lýðræðissamfélagið í heild sinni. Hún var stofnandi Kvenréttindafélags Íslands
árið 1907 og formaður félagsins frá stofnun allt til ársins 1928. Markmið félagsins var
að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn,
kosningarétt, kjörgengi og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og
karlmenn.
Konur í Reykjavík buðu fram sérstakan Kvennalista fyrir bæjarstjórnarkosningar árið
1908 og var það fyrsta sérframboð kvenna á Íslandi. Kvennalistinn vann stórsigur,
kom öllum sínum fulltrúum að. Konurnar fjórar, þær fyrstu sem settust í bæjarstjórn
Reykjavíkur, voru Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Guðrún Björnsdóttir, Katrín Magnússon og
Þórunn Jónassen. Málin sem þær börðust fyrir í bæjarstjórn voru meðal annars
sundkennsla fyrir bæði kynin og leikvellir fyrir börn. Vegna mikillar fátæktar í bænum
voru mörg börn vannærð og beitti Bríet Bjarnhéðinsdóttir sér fyrir því í bæjarstjórn að
börn fengju mat í skólanum. Matargjafir komust á og var þeim haldið áfram af og til
fram á fjórða áratuginn. Bríet lést í Reykjavík árið 1940.