
Blómakaupmaðurinn í Hlíðablómi í Austurverið á Háaleitisbraut hefur komið upp blómasjálfsala við verslun sína þar sem hægt er að versla þegar búðin er lokuð. Sjálfsalinn er í almannarými í Austurveri sem er opið fram til miðnættis og opnað aftur 7:30 að morgni.




