„Núna finnst mér eins og ég sé að skrifa minningargrein,“ segir Jórunn Sjöfn Guðlaugsdóttir ljósmyndari og vesturbæingur og hér er ástæðan:
–
„Fór með bílinn minn áðan í síðasta sinn í dekkjaskipti á N1 Ægisíðu þar sem ég fékk formlega hinstu kveðju frá okkar bestu mönnum og bestu þjónustustöð sem völ er á. Ég sem græt inní mér og get ekki til þess hugsað að það sé verið að loka. Takk fyrir mig og allt sem þið hafið gert til að auðvelda mér lífið.“





