
Kolbrún Áslaug Baldursdóttir sálfræðingur og pólitíkus er afmælisbarn dagsins, orðin 67 ára og fær þá frítt í sund og afslátt í Brauð & Co og Lyfju osfrv. En líklega hefur hún notið þeirra fríðinda til margra ára sem oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur 2018, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins 2006, varaþingmaður Flokks fólksins 2022 og nú alþingismaður Flokks fólksins frá því í síðustu kosningum og 6. varaforseti Alþingis. Hún fær óskslagið Time Is On My Side:







