Húsverndarsjóður Reykjavíkurborgar auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum. Opið er fyrir umsóknir frá og með deginum í dag, 17. febrúar, til og með 9. mars 2026.
–
Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn:
-
Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
-
Tímaáætlun.
-
Kostnaðaráætlun (með sundurliðun ef um er að ræða marga þætti).
-
Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til.
Frekari upplýsingar eru veittar af Húsverndarstofu sem er með opinn símatíma á miðvikudögum klukkan 15-17 í síma 411 6333.







