„Það var á brattann að sækja – nýkomin í flokkinn, án nokkurrar atrennu, án reynslu af prófkjörskúltúrnum og án maskínu sem greiðir leiðina,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir, fyrrum Pírataforingi í borgarstjórn sem skipti yfir í Samfylkinguna – sem hafnaði henni í prófkjöri:
–
„Ég er ótrúlega stolt af því að 1.616 einstaklingar hafi treyst mér fyrir atkvæði sínu. Mér skilst af þeim sem hafa gengið í gegnum þetta áður að í þetta skiptið hafi svolítið önnur öfl verið að verki. Fyrir fjórum árum hefðu 1.616 atkvæði dugað vel í efstu sæti.“






