Þetta er gamla Laugardalslaugin við Sundlaugaveg. Hrafn Gústafsson tók myndina 1966 og litaði hans síðar. Tveimur árum seinna, 1968, var nýja Laugardalslaugin tekin í notkun og þessi hvarf.
Friðrik Brekkan leiðsögumaður ólst upp í næstu götu og var fastagestur í gömlu lauginni sem drengur:

„Mjóu gluggarnir voru gluggarnir í sturtuklefunum. Oft varð maður að opna þá bara til að geta séð handaskil í gufunni. Man eftir að á gólfinu í karlasturtunni var breið svört gúmmímotta. Oft stóð forsetabíllinn með fána fyrir utan laugina en Ásgeir Ásgeirsson kom mjög oft þarna. Skipiklefarnir voru merkilegir úr bæsuðum og lökkuðum viði og svo voru útiskýlin stór og frábær með trégólf og veggi.“







