HomeSagt erÞÓRDÍS Í MARSHALL

ÞÓRDÍS Í MARSHALL

Myndlistarkonan Þórdís Alda Sgurðardóttir opnar einkasýningu sína, Lífsmynstur – Öll þessi ár, í Marshallhúsinu á Granda á laugardaginn 24. janúar – 17-19.

Eitt af verkum Þórdísar.

Sýningin er persónuleg könnun Þórdísar á tengslum mannverunnar við umhverfi sitt. Í verkum sínum rannsakar hún hugmyndina um „náttúru“ sem línu dregna á milli okkar og heimsins í kringum okkur, sem við nánari skoðun reynist vera tilbúningur. Þessi lína verður sífellt óljósari í samtímanum en Þórdís kannar hana endurtekið af næmni og forvitni.

Þórdís Alda Sigurðardóttir (f. 1950 í Reykjavík) er myndlistarkona sem býr og starfar í Mosfellsbæ og Skagafirði. Hún nam við Kennaraháskóla Íslands, Myndlistarskóla Reykjavíkur, Mynd- og handíðaskóla Íslands og Akademie der Bildenden Künste í München, Þýskalandi. Þórdís hefur verið virkur þátttakandi í myndlistarlífi Íslands í áratugi og tekið þátt í fjölda sýninga hérlendis og erlendis, m.a. í Listasafni Reykjavíkur, Listasafninu á Akureyri, Galleri Katedralen í Danmörku og Arka gallerí í Litháen. Hún er félagi í SÍM, MHR, Royal Society of Sculptors í Bretlandi og Akademíu skynunarinnar. Í verkum hennar eru efniviður, skynjun, minningar og umhverfi í forgrunni, þar sem hún skapar marglaga og persónulegt myndmál. Verk hennar hafa verið sýnd víða um Ísland, í Evrópu og Bandaríkjunum.

Previous article
Next article
TENGDAR FRÉTTIR

TAFLMENN Á LEIÐI SKÁKMEISTARA

Fréttahaukur á leið um Flóa kom við í Laugadælakirkjugarði þar sem skákmeistarinn Bobby Fischer hvílir. Þar sá hann frétt. Kóngi, biskup og peði hafði...

ADHD LJÓÐ Á LAUGARDEGI

ég lærði að ganga tala lesa skrifa og reikna - en aldrei að vinna með mig - ég þjáist rek mig á veggi - ofvirkur brotinn adh eitthvað ruglaður - lendi í ekki mér að kenna - lífið líður hjá orka kraftar hæfileikar - á móti ekki með - ég lærði að ganga tala lesa skrifa og reikna - en aldrei á...

RAUÐSOKKUSTYTTA Í HLJÓMSKÁLAGARÐINN

Að tillögu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra verður minnismerki um kvennabaráttuna reist í Hljómskálagarðinum. Mun það styðja við sjálfsmynd Reykjavíkurborgar sem jafnréttisborg, heiðra sögu og...

FÖLSUÐ HEYFILSMERKI Á LEIGUBÍLUM VIÐ LEIFSSTÖÐ

"Þegar við kom heim frá Spáni um daginn tókum við Hreyfils leigubíl með gula merkinu í framrúðunni," segir Örn Garðarsson, áður landsþekktur veitingamaður sem...

HAFNFIRSKIR ÖLDUNGAR VILJA ÚTSÝNI ÚR HEITU POTTUNUM

Öldungaráð Hafnarfjarðar vill að steyptur veggur sem snýr að sjónum á útisvæði Sundhallar Hafnarfjarðar verði tekinn niður og glerveggur settur upp í staðinn til...

TRÚNAÐARBRESTURINN Í FLOKKI FÓLKSINS – INGA SÆLAND SETTI SON SINN Í STÖRF GUÐMUNDAR INGA

Nú er komið í ljós hver trúnaðarabresturinn í Flokki fólksins var þegar Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður flokksins og ráðherra, sneri aftur eftir alvarlega hjartaaðgerð...

ÆRUVERND SÉRA FRIÐRIKS Í SELTJARNARNESKIRKJU

Félagið Æruvernd gengst fyrir málþingi í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 19.apríl kl. 14 síðdegis undir heitinu „Hvað er sannleikur? Æruvernd og dómstóll samfélagsmiðla.“ Á málþinginu verður fjallað...

RÁÐHERRARUGL

Það var ágætt hjá nýrri ríkisstjórn að kalla eftir hugmyndum um sparnaðaraðgerðir frá „sótsvörtum almúganum“ eins og einn aðstoðarmaður ráðherra kallar fólkið í landinu....

VIGDÍS (96)

Vigdís Finnbogadóttir, ástsælasti og virtasti forseti íslensku lýðveldissögunnar, er 96 ára í dag. Minning: Sur le pont d'Avignon heitir franskur alþýðusöngur sem Vigdís söng fyrir...

JAPANSKUR LÆKNIR VINNUR KRAFTAVERK Á LANDSPÍTALA

Ken Namikawa, yfirlæknir meltingarlækninga á Landspítala, fjarlægði krabbamein í munnholi sjúklings með speglunartækni og var grein um tilfellið nýverið birt í læknatímaritinu ACG Case...

„TÖLUM VIÐ ERFIÐUSTU ATKVÆÐIN FYRST“

Jón Kristinn Snæhólm, landsþekktur íhaldsmaður frá unga aldri, er kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins og óháðra í Suðurnesjabæ auk þess sem hann skipar 16. sætið á lista...

STOLTUR FAÐIR FRAMBJÓÐANDA

"Þetta er hún dóttir mín. Hún er föðurbetrungur," segir Helgi Magnús Gunnarsson, landsþekktur fyrrum vararíkisaksóknari, en dóttir hans, Agnes Sólbjört Helgadóttir, skipar 7. sætið...

Sagt er...

Ásdís Rán, ísdrottning og forsetaframhóðandi, hefur notið veðurblíðunnar í sumrbústað í Grímssnesinu um helgina. Svo ánægð með veðrið að nýyrði hraut af vörum hennar:...

Lag dagsins

Fæðingardagur Eliot Ness (1903-1950), lögregluforingja í Chicago sem barðist gegn spillingu innan lögreglunnar á bannárunum í Bandaríkjunum 1920-1933. Hann náði árangri með því að...