Davíð Oddsson fyrrum borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og nú ritstjóri Morginblaðsins er 78 ára í dag. Davíð er líklega umdeildasti stjórnmálaður Íslandssögunnar en um leið sá fyndnasti og ritfærasti:
Þegar hann tók á móti Simoni Peres, þáverandi utanríkisráðherra Ísrael, á Þingvöllum 1993 var kalt í lofti. Davíð heilsaði honum með eftirfarandi orðum: „You are the chosen people. We are the frozen people.“ Og hlátrasköllin bergmáluðu í Almannagjá.
Til hamingju með daginn, Davíð!






