Ökumaður þessa bíls frá Hopp var eitthvað að flýta sér í Drekann á Njálsgötu (landsþekktur söluturn) og hoppaði einfaldega í gegnum girðingu og í garð hússins á móti.
„Hopp er sjálfbær samgöngulausn fyrir nútíma borgir. Við gerum þér kleift að ferðast á milli staða án þess að skilja eftir kolefnisfótspor,“ segir í auglýsingum frá Hopp en ekkert er minnst á girðingar og garða sem þeir hoppa ekki yfir heldur í gegnum.







