Veitingastaðurinn Indian Curry House á Vesturgötu í Reykjavík lokaði í byrjun desember eftir tveggja ára rekstur. Staðurinn var útibú frá samnefndum stað á Akureyri sem stendur í blóma eftir áralangan rekstur við Ráðhústorgið þar í bæ.
Indian Curry House á Vesturgötu naut vinsælda í hverfinu sem take away staður. Bílastæðavandamál stóðu honum þó fyrir þrifum og gangandi umferð ekki jafnmikil þarna á Vesturgötunni eins og neðar i Kvosinni.







