„Fréttir úr símalausri unglingadeild,“ skrifar Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar en „frétt“ hans er svona:
–
„Krakkarnir nota nú hverja lausa stund til að fara af skólalóð, heim, eða í einhverja aðra byggingu nálægt bara til að komast á netið. Gangarnir og félagsmiðstöðvar standa tómar. Glæsileg niðurstaða og að öllu leyti ófyrirsjáanleg.“
–
Hlynur Einarsson forstöðumaður í félagsmiðstöð hjá Reykjavíkurborg rekur þetta öfugt ofan í þingmanninn:
–
„Mig langar mig að biðja þig um að gera betur en þetta Pawel. Hvaðan hefur þú þessa frétt? Hvaða félagsmiðstöðvar standa tómar, allavega ekki sú sem ég stýri. Ég er ekki að tala með eða á móti þessari stefnu um símalausa skóla, en mér finnst þetta ótrúlega óábyrgt og vitlaus framsetning hjá þér. Það væri líka mjög undarlegt ef félagsmiðstöðvarnar væru tómar þar sem þar er ekki símabann, ekki svo ég viti til.“






