Um áramótin sameinast Listasafn Einars Jónssonar og Listasafn Íslands.
”Það er mikill hugur í okkur að sameina þessi tvö söfn. Ég er viss um að söfnin muni bæði eflast og að myndlistin nái sterkari rödd úr í samfélagið”, segir Ingibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands.

”Með auknum stuðningi náum við að lengja opnunartíma á Listasafni Einars Jónssonar og þannig ná fleiri gestum á safnið en á torginu fyrir framan Hallgrímskirkju koma tvær milljónir túrista á hverju ári. Við þurfum að ná til almennra Íslendinga og nemenda á öllum aldri en söfnin þurfa líka að ná betur til ferðamanna. Verk Einars eru forvitnileg og safnið spennandi staður sem gefur innsýn inn í annan heim.“







