
Söfnun vegna útgáfu á Lambadagatalinu 2026 á Karolina Fund hefur sprengt alla skala en upphaflega var markið sett á 1.500 evrur. Núna, þegar nokkrir dagar eru eftir, hafa safnast 2.479 evrur. 165% árangur!

Þetta er tólfta árið sem Ragnar Þorsteinsson og félagar standa að útgáfu Lambadagatalsins en Ragnar er ljósmyndari og sauðfjárbóndi og myndirnar í dagatalinu allar teknar á búi fjölskyldunnar í Sýrnesi Aðaldal, Suður-Þingeyjarsýslu á sauðburði 2024.







