„Íslenskunni stafar hætta af græðginni,“ segir Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóri og samfélagsrýnir á degi Íslenskrar tungu – fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar:
„Okkur liggur svo mikið á í hömlulausri sókn eftir veraldlegum gæðum að við göngum á náttúruna. Ekki fyrir almenning heldur örfáa fjárfesta. Það sést af því að við flytjum inn vinnuafl í þessu skyni. Ferðabransinn er skýrasta dæmið, áform um stórfellt fiskeldi án tillits til þolmarka náttúrunnar er annað. Meira en 10% íbúa landsins eru nú útlendingar og má búast við að hlutfallið hækki hratt á næstu árum. Það er einmitt hraði breytinganna sem við getum stjórnað, en gerum það ekki. Íslenskan mun eiga í vök að verjast. Öllu er fórnað á altari mammons.“







