HomeGreinarARKITEKTINN SEM ÞORIR MEÐAN AÐRIR ÞEGJA - LIST & HÖNNUN

ARKITEKTINN SEM ÞORIR MEÐAN AÐRIR ÞEGJA – LIST & HÖNNUN

Trausti Valsson arkitekt hefur gefið út bokina LIST & HÖNNUN í tilefni af áttræðisafmæli sínu um áramótin. Í útgáfuhátíð í Þjóðabókhlöðunni var Logi Einarsson menningarmálaráðherra mættur, en hann er líka arkitekt, og sagði meðal annars í ræðu sinni:

Tveir arkitektar – Trausti og Logi.

„Þegar ég kom, ungur maður, heim úr námi, saknaði ég þess að það var ekki mikil heift eða mikil deigla í umræðunni, arkitektar voru ekki mikið að takast á um þjóðfélagsmál. Trausti gerði það hinsvegar og hefur alla tíð gert, en var kannski með skoðanir sem voru ekki alveg miðju skoðanir. Það var kannski þetta sem kveikti áhuga minn á Trausta á sínum tíma.

Trausti hefur skrifað mikið um samspil manns og náttúru og viðhorf til náttúrunnar, og umgengni við hana. – Fyrir nokkrum mánuðum byrjaði ég aftur að skoða bækur hans… sem eru mjög aðgengilegar fyrir alla að lesa. Þá sá ég að það var fyrst og fremst það sem hann hafði; að þora… á meðan aðrir þögðu“.

Massimo Santicchia, deildarforseti og prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands:

Bókin „List og Hönnun“ stendur ekki bara sem hápunktur um ævi Trausta Valssonar í listrænum, byggingarlistar- og akademískum störfum, heldur sem heimspekileg yfirlýsing um hlutverk fagurfræði, mannúðar og tilfinninga í mótun þess rýmis sem við búum í.

Óskar Örn Arnórsson, dr. í arkitektúr:

„List og Hönnun“ eftir arkitektinn, skipulagsfræðinginn og fræðimanninn dr. Trausta Valsson er fyrst og fremst fagur vitnisburður um langan og merkilegan feril og líf sem var lifað til fullnustu. Trausti er mér að vitandi fyrsti íslenski arkitektinn sem sýndi að meira að segja á Íslandi geta arkitektar lifað af öðru en að teikna hús. Hann notaði menntunina sem hann sótti sér til Berlínar á sjöunda áratugnum og Berkeley á þeim níunda til að greina allt á milli himins og jarðar – frá höfuðlagi vinar síns og skólafélaga til hnattrænna siglingarleiða og gerir öllu þessu skil á síðum bókarinnar.

Goddur, fyrrv. prófessor við hönnunardeild Listaháskóla Íslands:

Þessi bók „List og Hönnun“ er mikilvægt framlag í umræðunni um gervigreind. Gervigreindin vinnur bara með efni sem er fyrir hendi – hún hefur augun fyrir aftan sig. Hún sér ekki framtíðina. Trausti sýnir það sem skapandi fólk veit að það er höndin, hugboðið, innsæjið og tilfinningar sem skapa framtíðina. Stundum er sagt að vilji þú vita eitthvað um framtíðina skaltu búa hana til sjálfur. þessi bók er full af dæmum um þetta.

Þóra Bergný Guðmundsdóttir, arkitekt og höfundur rita um arktektúrsögu:

Farið yfir farinn veg og horft til framtíðar: – Við horfum forviða í kringum okkur. Er arkitektastéttin haldin djúpu svartnættis-þunglyndi og eru húsbyggjendur og verktakar þrúgaðir af eftirhruns timburmönnum?

Af hverju er allt svona einsleitt og grátt. Hvar eru blómin, litirnir, útsýnið, birtan og hið gjöfula rými milli húsanna? Höfum við fórnað fegurðinni á altari meintrar hagkvæmni? –  Arkitektinn og hugsuðurinn Trausti Valson lýsir í þessu skemmtilega og fræðandi riti, tilurð sinni og viðhorfum sínum, bæði á sviði mynd- og byggingarlistar… á einkar myndrænan og nýstárlegan hátt.

Inn í hávísindalegar bollaleggingar fléttar Trausti tilfinnigavíddinni, ættaðri úr austur-vegi… og úr verður einlæg og fræðandi lesning, þar sem niðurstaða höfundar er „að arkitektúr, hönnun og skipulag eiga að vera innblásin af list og þrá eftir samræmi og fegurð“.

Spessi – Sigurþór Hallbjörnsson, ljósmyndari:

Með að skoða verk Trausta hef ég komist að því að hann hefur verið mikill pönkari í arkitektúr, sjálfur prófessorinn í verkfræðideild í Háskóla Íslands. – Hann hefur verið óspar á skoðanir sínar á arkitektúr og skipulagi og þess vegna lent í miklum mótbyr í arkitektasamfélaginu.

En, svona rödd er nauðsynleg… en það jaðrar við þráhyggju að hann hefur nú í næstum 60 ár, aldrei látið af sínum gagnrýna boðskap um íslenskan arkitektúr og skipulag. Hefur þetta – trúi ég – komið í veg fyrir ýmis skipulagsslys í nútímanum.

 

Previous article
Next article
TENGDAR FRÉTTIR

HUNDAR Í BÓNUS

Jónatan Hermannsson jarðræktarfræðingur og skáld birtir ljóð sín reglulega á samfélagsmiðlum. Yfirleitt tímabærar athugasemdir um lífið. Hér er "Hundar í Bónus: - fór í Bónus í...

LAMBALÆRI FRÁ KAUPFÉLAGI SKAGFIRÐINGA Á 3.000 KRÓNUR Á COSTA BLANCA

Íslendingar á Costa Blanca svæðinu á Spáni ganga nú að skagfirskum lambalærum í stórmörkuðum á aðeins 3.000 krónur íslenskar. Sama læri kostar ca. 12.000...

PISSUSKÁLAR Í RIGA

Kristinn Sigurjónsson verkfræðingur átti leið um flugvöllinn í Riga í Litháen og brá í brún þegar hann þurfti að létta af sér á vellinum: "Þessar...

ÁSGRÍMUR SLEGINN Á 8,7 MILLJÓNIR Á UPPBOÐI HJÁ FOLD

Olíumálverk eftir Ásgrím Jónsson var selt á 8,7 milljónir á uppboði hjá Gallerí Fold í gærkvöldi. Verðmat fyrir uppboðið var hærra - 10-12 milljónir. Myndin...

BORGARSTJÓRI HLÝDDI AGLI HELGA – SUMARBLÓMUNUM HLÍFT Á UMFERÐAREYJUM

Tilmæli Egils Helgasonar til borgarstjóra um að hætta að slá sumarblómin fögru á umferðareyjum í höfuðborginni virkuðu. Á gatnamótum Háaleitisbrautar og Stóragerðis nú síðdegis mátti...

FYRSTA KONAN SKIPUÐ REKTOR MH

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Helga er...

ORÐABÓK UM ÖLVUNARÁSTAND

Þessi listi með íslenskum orðum yfir ölvunarástand birtist í blaðinu Stormi 1933. Tólf árum síðar birtist þetta: Halldór Laxness skrifar grein - "Fylliraftarnir" þar...

GERVIGREINDIN LITAR GAMLAR LJÓSMYNDIR

Ingvar Víkingsson, grafískur hönnuðu frá Stykkishólmi, spurði gervigreindina hvort hún gæti litað gamla ljósmynd af sér frá 1977. Gaf upp litina á svart/hvítu myndinni;...

GRINDAVÍK GALOPIN

Lífið í Grindavík er að taka á sig fyrri mynd þó hægt fari. Flest fyrirtæki í gangi, fólk að snúa heim og auglýsingaherferð hafin...

SOKKUR DAGSINS

Þetta er sokkur dagsins. Liggur þétt að fæti, kuðlast ekki og andar á afláts. Virkar einnig sem inniskór. Fæst á Netinu.

EGILL SENDIR BORGARSTJÓRN TILMÆLI

Egill Helgason fjölmiðlastjarna sendir nýrri borgarstjórn tilmæli í þágu náttúrunnar og sparnaðar: "Hætta að slá gras sem er nýsprottið - með ærnum tilkostnaði. Ekki taka...

BILAÐ HEYRNATÆKI Á COSTA BRAVA

"Veit einhver hvar er hægt að láta að laga heyrnatæki?" spyr Rut Másdóttir íbúi á Costa Brava á Spáni á samfélagsveF Íslendinga sem þar...

Sagt er...

Vesturbæingur ætlaði að búa til omilettu fyrir sig og sína, teygði sig í nýjan eggjabakka í ísskápnum og tók þar fjögur egg sem öll...

Lag dagsins

24. maí 1961 tilkynnti John F. Kennedy, þáverandi forseti Bandríkjanna, að stefnt yrði að því að senda menn til tunglsins fyrir lok áratugsins. Það...