„Það var og …,“ segir Herbert Guðmundsson fyrrum fjölmiðlamaður og framkvæmdastjóri á níræðisaldri í Þverbrekku í Kópavogi. Hann er einn liprasti penni þerra sem birta hugleiðingar á samfélagsmiðlum:
–
Núna er hluti afkomenda fyrir austan og norðan, svo sem ekkert splukunýtt. Það þarf að afla útsýnis og fæðu af laxfiskum/mest silungum og hreindýrum. Jú og þræða sjö golfvelli eystra. Hugsanlega verður komið við á Djúpavogi.
–

„Á Djúpavogi býr tónlistarkennarinn Berglind
Einarsdóttir sem hefur nú snúið sér að
ferðamennsku. Hún lóðsar þúsundir
ferðamanna um Djúpavog, syngur fyrir
þá í gömlum lýsistanki og selur þeim svo
laxapylsur úr matarvagni sínum.“
Kom þarna við fyrir 50 árum, þá var Berglind ekki fædd.







