„Frá því í morgunn hafa hlaupahjól frá Bolt og Hopp verið á gangstéttinni á horn Skólavörðustíg og Bergstaðastrætis. Hjólin hindra gangandi umferð,“ segir Hildur Bolladóttir sem rekur þarna verslun:
„Við náðum sambandi við Hopp en ekki Bolt, við finnum ekkert símanúmer hjá þeim. Það er ekki hægt að hafa samband við þá nema í gegnum appið hjá þeim. Hopp átti þrjú hjól og vildu ekki færa þau, þar sem þetta svæði er ekki skilgreint sem bannsvæði. Hjólin trufla gangandi umferð þegar þau eru í svona miklu magni.“







