Blómaskálinn á Lækjartorgi nýtur vinsælda hjá túristum sem margir eru hingað komnir til að njóta náttúrunnar og gróðurs sem er kannski ekki á hverju strái heima hjá þeim.

„Vissir þú að Reykjavikurborg ræktar og plantar yfir 130.000 sumarblómum á hverju ári“ stendur á glerhýsinu á íslensku og ensku.

Svo er skellt í lás þegar degi hallar til að koma í veg fyrir að ferðamenn gisti í þessari paradís í miðri borg.






