HomeSagt er17. JÚNÍ PRÓGRAMM

17. JÚNÍ PRÓGRAMM

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður boðið upp á fjölbreytta og veglega dagskrá í Reykjavík. Skrúðganga verður frá Hallgrímskirkju, tónleikar, götuleikhús, dansveisla, sirkus, leiktæki, matarvagnar og fornbílasýningar í Hljómskálagarði og á Klambratúni svo fátt eitt sé nefnt. 

Hátíðarathöfn á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins hefst á Austurvelli kl. 11:10 en henni verður sjónvarpað og útvarpað á RÚV. Þar flytur forsetinn hátíðarávarp en ekki forsætisráðherra eins og hingað til. Forsætisráðherra leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og fjallkonan flytur ávarp en venju samkvæmt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til hún gengur út á völlinn. Að lokinni athöfn fer skrúðganga frá Austurvelli í Hólavallakirkjugarð þar sem Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig frá Reykvíkingum að leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur konu hans. 

Skátar leiða skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju klukkan 13:00 sem endar í Hljómskálagarðinum. Í skrúðgöngunni slást leynigestir með í hópinn þeirra á meðal eru allir landvættir Íslands. Lúðrasveitin Svanur leikur undir sér um að slá taktinn. 
Öllum er velkomið að taka þátt. 

 Í Hljómskálagarðinum verður fjölbreytt dagskrá og ætti engum að leiðast – dans, sirkus og hoppukastalar og allt ókeypis.  

Á Klambratúni hefst fjörið klukkan 13:00. Þar verða matarvagnar, Lúðrasveit verkalýðsins og alls konar sprell fyrir börn og fullorðna.

Í Ráðhúsinu verður harmonikkufjör og í Árbæjarsafni verður hægt að skoða þjóðbúninga, sjá þjóðdansa, fornbíla og fá gamaldags sleikjóa. Ókeypis aðgangur fyrir þá sem mæta í þjóðbúningi, öryrkja og börn.

Allir velkomnir alls staðar.

TENGDAR FRÉTTIR

PÁSKADAGUR Í RÚSSNESKU RÉTTTRÚNAÐARKIRKJUNNI

"Í dag er páskadagur hjá Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni sem ég er meðlimur í," segir Arnar Loftsson og birtir mynd af rússneskum páskamorgunverði sem eiginkona hans,...

STJÖRNUSPEKINGUR UM STÓRSTJÖRNU

Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur birti í kvöld stjörnuspá í tilefni af andláti Björgvins Halldórssonar - sem var og verður alltaf stjarna: - Hrútur, einyrki, skemmtikraftur og gleðigjafi. Beinskeyttur:...

BENSÍNSJOPPAN SEM SPRAKK

Frá Tækniminjasafni Austurlands á Seyðisfirði: - Það hefur gengið á með lægðum, óveðrum, tilheyrandi ófærð og sem betur fer einstaka góðviðrisdögum undanfarnar vikur sem hefur haft...

GAMLIR OG GLÚRNIR FERÐAKÓNGAR

Ferðaskrifstofan Ævintýraferðir Örnólfs hefur skipulagt ferðir og kynnt langt fram á næsta haust. Á bak við Ævintýraferðir stendur Örnólfur Árnason, landsþekktur rithöfundur og lífskúnstner,...

ÁRITUÐ BÓK DAVÍÐS TIL ÓLAFS RAGNARS Á UPPBOÐI

Eintak af bók Davíðs Oddssonar, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, er á bókauppboði Foldar. Eintakið er áritað af Davíð til þáverandi forsetahjóna, Ólafs Ragnars...

MÓÐIR JÖRÐ FÓTBROTIN Á LANDSPÍTALA

Verkið Móðir jörð eftir Ásmund Sveinsson, sem er staðsett í gamla anddyri Landspítalans í Fossvogi á annarri hæð, er illa farið. Bæði móðir og...

70 ÞÚSUND HLUSTUÐU Á PATRIK UM PÁSKANA

Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Eftirmál, sem fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Yaghi stýra, vakti mikla athygli yfir páskana. Í þættinum er fjallað um morðið á...

VOPNAHLÉ – „RISASPARK Í PUNGINN“

"Jedúddamía. Hópur af geitasmölum í Íran hefur sigrað mesta herveldi sögunnar," segir Friðrik Indriðason, þrautreyndur blaðamaður, í tilefni af fréttum dagsins: - "Það sem Íran fær...

MÚSAGILDRUR GEGN VASAÞJÓFUM

Vasaþjófar herja á erlenda ferðamenn hér á landi og eru til vandræða. Friðrik Brekkan, þrautreyndur leiðsögumaður, er með lausn: "Þessar sterku músagildrur fást í Kemi....

FINNSK PÁSKAEGG

Svona páskaegg er hægt að fá í Finnlandi. Líta út eins og venjuleg egg í eggjabakka frá súkkulaðiframleiðandanum Fazer. Svo er skurnin fjarlægð og...

SNJÓKARLINN Á BEKKNUM

Miðbæjarlistin tekur á sig ýmsar myndir í Reykjavík. Hér situr snjókarl á bekk fyrir framan Drekann, söluturn á Njálsgötu. Líkt og blindfullur um miðjan...

HÁRHORNIÐ HREKST AF HLEMMI VEGNA HÚSALEIGU

Ein vinsælasta og ódýrasta rakarastofa Reykjavíkur, Hárhornið á Hlemmi, flytur sig um set eftir 29 ára á horninu á Hlemmi. Ástæðan er hækkandi húsaleiga...

Sagt er...

Sorphirða í SmáíðúðahverfinU í Reykjavík 1987. Öskukarlar voru sorphirðumenn þá kallaðir. Myndina tók Gunnar V. Andrésson stjörnuljósmyndari í Háagerði þar sem hann bjó sjálfur.

Lag dagsins

Á þessum degi, 12. apríl 1954, hljóðrituðu Bill Haley & His Comets súpersmellinn Rock Around the Clock og heimurinn rokkaði með. https://www.youtube.com/watch?v=ZgdufzXvjqw