Húsfélög í Garðabæ eru hvött til að vera á vaktinni vegna ágangs máva. Sérstaklega eru þau hvött til að vakta húsþök á fjölbýlishúsum en en góður árangur hefur náðst með því að setja upp fælur á þök, eins konar veifur.
Meindýraeyðir á vegum Garðabæjar hefur sett fuglagadda á ljósastaura í Sjálandi, Prýðahverfi, Austurtúni, Skólatúni og Suðurtúni til að koma í veg fyrir að mávar geti hafst við á staurunum. Farið verður eftir ábendingum íbúa ef fuglagöddum verður komið fyrir á fleiri staurum í bænum. Einnig verður stungið á egg mávanna þó ekki í friðlandi bæjarins.
Tekið skal fram að meðfylgjandi myndband er ekki tekið upp í Garðabæ.