„Það er alltaf tilhlökkun í lofti og gleðiefni þegar Hjólað í vinnuna hefst. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá að hefja átakið hér í Ráðhúsinu í Reykjavík enda leggjum við mikla áherslu á að bæta innviði sem snúa að hjólandi vegfarendum,“ sagði Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurborgar sem setti heilsu- og hvatningarátakið Hjólað í vinnuna í gær.