„Hver þarf aðflogna nautasteik þegar fjallgengar framhryggjasneiðar eru í boði?“ spyr Sveinn Markússon járnlistamaður í Hafnarfirði:
–
„Tomahawk eða T-Bone eru vinsælu grill nautasteikurnar kallaðar, en þessar lamba þurfa ekkert flúrað nafn.
–
Sjáið fegurðina? Þær raðast á pönnuna eins og lungu frelsarans og sveppirnir frá Flúðum minna á hjartað með öllum sínum pípum.
–
Kartöflurnar og laukarnir minna okkur á eilífðina sem við munum öll njóta.“