Íslendingur opnar heita potta að íslenskri fyrirmynd í miðri New York. Fyrirtækið heitir „SUND“ og er á lokametrunum við undirbúning.
Það er framkvæmdamaðurinn og leiklistarneminn Styrmir Elí Ingólfsson Vigdísarson sem stendur á bak við þetta ásamt félögum sínum. Styrmir stundar nám við Stella Adler Studio of Acting í New York auk þess að vinna að listrænum gjörningum með sambýliskonu sinni Thelmu Mogensen – sjá hér.