Það var auðveldara að rúlla þessu eftir Vesturgötunni sjálfri en gangstéttinni. Vegurinn sléttari.
Eigandinn sagðist vera frá Gana og hafa búið á Íslandi í þrjú ár. Hann vildi ekki vera með á mynd sem var synd því hann var með svo fína svarta húfu sem var merkt með rauðum stöfum: Iceland.
Hann sagði þetta vera tveggja vikna dósasöfnun að kvöldlagi eftir vinnu. Stundum væri þetta meira, stundum minna.
Ekki vildi hann slá á hvað hann fengi fyrir þetta í Sorpu í Ánanaustum en þangað var ferðinni heitið á sunnudegi. En miðað við fjölda pokanna og magn er verðmætið líklega 25 þíusund kall til eða frá.