Það kvað við nýjan tón á Happy Hour á Kaldabar eftir göngu verkalýðsfélaganna í gær 1. maí. Félagar í lúðrasveitinni Svanur mættu og fengu sér hresssingu og einn tók trompetið með og blés í allar áttir.
Svanur leikur alltaf í kröfugöngum verkalýðsfélaganna þar sem Lúðrasveit verkalýðsins er fyrir: “ Við spilum bæði saman og sundur,“ sögðu þau kát eftir gönguna.
Lúðrasveitin Svanur var stofnuð 1930 og í henni eru nú 40 félagar á aldrinum 15-60 ára. Æfingar eru á mánudögum kl. 20:00 í æfingarými sveitarinnar í Þönglabakka 4 í Mjódd.