HomeGreinarHÖGGMYNDAGARÐURINN EINS OG VIN Í MALBIKI NÝLENDUGÖTU

HÖGGMYNDAGARÐURINN EINS OG VIN Í MALBIKI NÝLENDUGÖTU

Högmyndagarðurinn á Nýlendugötu er eins og vin í malbiki götunnar. Opinn allan sólarhringinn, alla daga og alltaf eitthvað um að vera, nýtt að sjá með smápásum.

Lisataparið Olga og Anna.
Lisataparið Olga og Anna.

Nú sýna þar vinkonurnar Olga Bergmann Anna Halin verk sem heitir Endurkoman og sækir innblástur í 5000 ára gömul mesópótamísk augnskurðgoð sem uppgötvuðust við fornleifauppgröft í Tel Brak í Sýrlandi rétt fyrir heimsstyrjöldina síðari og ólíkar hugmyndir um uppruna þessara skurðgoða og hlutverk. Verkið fjallar um tilfærslur í tíma, staðsetningu og menningu með vísbendingum í anda fornleifauppgraftar þar sem nýju ljósi er varpað á menningarlegt og jarðsögulegt samhengi hlutanna.

„Endurkoman“ kallast á við verkið „Missing Time“ sem Olga og Anna sýndu á norræna tvíæringnum Momentum 9 – Alienation í Noregi árið 2017. Heimspekingurinn Michel Foucault notaði aðferðir fornleifafræðinnar til að sýna fram á að nútíminn væri afleiðing fortíðarinnar en sú fortíð er aðeins skráð að hluta. Þetta skráningarferli byggir á útilokunarkerfi sem ræður því hvað kemst inn í mannkynssöguna. Það sem ekki passar í kerfið er útilokað frá skrásetningu, sem gerir söguna götótta og opnar fyrir skáldskap. Skáldskapurinn fyllir upp í þessi göt og býr til möguleika á að horfa á söguna frá nýju sjónarhorni.

TENGDAR FRÉTTIR

FUNDU EKKI Á SÉR AF CAPTAIN MORGAN

Hjónin Elín Sigurðardóttir og Björn Sigmundsson dvelja á Spáni í góðu yfirlæti. Um daginn splæstu þau í flösku af Captain Morgan á mjög góðu...

TANNLÆKNAR PANTA FRÁ ÚTLÖNDUM – STYTTRA EN Í GARÐABÆ

Íslenskir tannlæknar eru í auknum mæli farnir að panta efni til tannviðgerða frá útlöndum. Til þessa hafa þeir pantað frá aðalbirgi sem staðsettur er...

EGILL (67)

Fjölmiðlastjarnan Egill Helgason fagnar merkum áfanga í dag, orðinn 67. Síungur og frískur þó eldri borgari sé orðinn og hefur ekki ástæðu til að...

TVEIR TURNAR

Hótelturninn á Skúlagötu "kallast á við" Hallgrímskrikju í upphafsstefni sjónvarpsfrétta ríkisins á hverju kvöldi. Það tók 41 ár að byggja Hallgrímskirkju en hótelturninn átti...

VIÐVERA OG VIÐHALD Í KEFLAVÍK

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Ísbjörg ritari segir í viðtali að hún sé mjög opin fyrir aukinni viðveru erlendra hermanna á Íslandi. En þeir þurfi líka að...

FYRSTI BÍTLABÍLLIN ´62

Bítlarnir Lennon, McCartney og George Harrison stilla sér hér upp við fyrsta bíl George sem var blár Ford Anglia með númeraplötunni 935 MPF. Myndin...

ALVÖRU GÖTUSTELPA OG ÓLAFUR RAGNAR Á HVERFISGÖTU

Fyrrum foreti Íslands hefur líkt núverandi utanríksráðherra við götustelpu í tali. Jóna Fanney Friðriksdóttir reis með réttu undir nafninu götustelpa á Hverfisgötu fyrir skemmstu: - Í...

ARNALDUR BÝÐUR Í BÍÓ

Forlagið fagnar stórum áfanga í útgáfusögu Arnaldar Indriðasonar sem verið hefur á toppnum í 30 ár heima og erlendis. Bækur hans hafa verið þýddar...

BÖLVUN GRÆNA LITARINS

"Ég hvet alla vini mína - liðsfélaga og mótherja - sem hafa orðið vitni af hjátrúnni/bölvuninni sem er í ætt minni varðandi græna litinn...

VIÐSKIPTARÁÐ ER EKKI Í VINSÆLDALEIT

Vinsæll viðskiptavinur sendir póst: - Viðskiptaráð er líklega einu hagsmunasamtökin hér á landi sem óttast ekkert að stíga óþyrmilega á tær annarra í þjóðfélaginu en eigin...

HVER ER KONAN?

Í hugum flestra leit hún ekki svona út - var mun glæsilegri. Örlög hennar voru ömurleg og þessi mynd er teiknuð af AI samkvæmt...

SLEPPIÐ PARÍS OG RÓM – SNÆFELLSNES ER STAÐURINN

Ferðavefurinn Travel+Leisure hvetur ferðamenn til að sleppa París og Róm að sinni og birtir lista yfir níu borgir í Evrópu sem eru ákjósanlegri um...

Sagt er...

Skorað hefur verið á Halldór Baldursson skopmyndateiknara að gera veggspjald af mynd dagsins í Vísi og innramma til jólagjafa. Ef marka skal undirtektir á...

Lag dagsins

Velski leikarinn Richard Burton (1925-1984) hefði orðið 101 árs í dag. Einn magnaðist leikari sinnar kynslóðar sem sló fyrst í gegn á sviði sem...