HomeGreinarSTJÖRNULJÓSMYNDARINN GVA Í LJÓSMYNDASAFNINU

STJÖRNULJÓSMYNDARINN GVA Í LJÓSMYNDASAFNINU

Hann merkti myndir sínar alltaf upphafsstöfum sínum GVA. Fréttaljósmyndarinn Gunnar V. Andrésson var einstakur í sinni röð á fimmtíu ára ferli með myndavélina á lofti. Hann var ekki bara ljósmyndari heldur einnig fréttamaður með fréttanef sem skákaði flestum öðrum með einstaka undantekningu. Svona fréttamenn fæðast ekki oft:

„Samferðamaður“ er yfirskrift sýningar sem opnuð verður á Ljósmyndasafni Reykjavíkur laugardaginn 3. maí kl. 15. Á sýningunni er farið yfir ríflega fimmtíu ára feril Gunnars V. Andréssonar fréttaljósmyndara – frá 1966 til 2017. Myndir hans sem birtar voru í dagblöðunum Tímanum, Vísi, DV (Dagblaðinu Vísi), Fréttablaðinu og á fréttavefnum visir.is, eru ómetanleg heimild um íslenskt þjóðlíf. Sýningin er sett upp á þann hátt að áhorfandinn gengur í gegnum tímann, ef svo má segja. Myndirnar eru sveipaðar tíðaranda hvers skeiðs fyrir og sýna glöggt breytingarnar sem urðu á tímabilinu – hvort sem er á umhverfi eða hinum ýmsu sviðum samfélagsins.

Horft er á Gunnar sem samferðarmann fólksins sem hann myndaði – fólks hvaðanæva að úr mannlífi líðandi stundar. Tilefnin eru ánægjuleg jafnt sem sorgleg. Einkum eru spor samferðamannsins skýr þegar skoðaðar eru myndir hans af fólki sem stóð í stafni opinbers lífs yfir langt skeið. Nefna má myndir hans af fyrrum forsetum Íslands þeim Vigdísi Finnbogadóttur og Ólafi Ragnari Grímssyni sem spanna upp undir fjögurra áratuga tímabil og hafa því mikið sögulegt vægi. Svo löng kynni ljósmyndara og viðfangs ljá ljósmyndunum auk þess meiri blæbrigði og dýpt.

Starf fréttaljósmyndarans tekur á jafnt andlega sem líkamlega en eins og góðum fréttaljósmyndara sæmir var Gunnar ávallt mættur þar sem eitthvað fréttnæmt var að gerast og skipti engu á hvaða tíma sólarhringsins það var. Stafræna byltingin í ljósmyndatækni sem varð á starfstíma Gunnars breytti gríðarlega miklu fyrir hann og gerði það að verkum að ekki þurfti lengur að vinna myndir í myrkraherbergi. Álagið út frá ys og þys starfsins hafði fram að því sett mark sitt á Gunnar og varð þessi breyting honum því kærkomin. Hann leit því aldrei til baka, að eigin sögn, enda var fréttaljósmyndun fyrir honum „bara blaðamennska með annað áhald í höndunum en pennann“. Þannig var frásagnargildi ljósmyndarinnar honum mikilvægara en fagurfræðilegt gildi hennar.

Gunnar V. Andrésson fæddist í Reykjavík 1950 og starfaði sem fréttaljósmyndari í ríflega fimmtíu ár. Hann hóf ferilinn hjá Tímanum árið 1966 þar sem hann var til 1978. Þaðan fór hann yfir á Vísi og eftir sameiningu Vísis og Dagblaðsins síðla árs 1981 varð hann ljósmyndari DV (Dagblaðsins Vísis) til 2003 þegar starfsemi útgáfufélags Frjálsrar fjölmiðlunar lauk. Þá varð hann ljósmyndari á Fréttablaðinu og fréttavef Vísis fram til loka starfsferils síns 2017.

TENGDAR FRÉTTIR

MESSI Á SAMA MATARÆÐI OG JÓNAS KRISTJÁNSSON

Áfengi, sykur og hvítt hveiti er á bannlista Lionels Messi en mataræði hans er í grundvallaratriðum það sama og Jónas Kristjánsson læknir boðaði fyrir...

„ÞAÐ ER BARA AF ÞVÍ AÐ ÞÚ HEFUR EKKI NÓG AMFETAMÍN“

Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur minnist vinar síns, Megasar, á kjarnyrtan hátt eins og henni er lagið: "Magnús Þór allur. Margs að minnast, alveg frá því um...

FJÁRMÁLARÁÐHERRA FER ÚR JAKKAFÖTUNUM

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er alltaf í jakkafötum. Þjóðin þekkir hann ekki öðruvísi. En nú er hann kominn í sumarfrí og hefur alveg skipt...

ÍSLENSKA VIÐSKIPTAMÓDELIÐ

"Íslenska viðskiptamódelið; kaupa upp öll fyrirtæki í sama rekstri til að tryggja fákeppni, hækka verð og reka fólk," segja þeir á kaffihúsunum á Skólavörðustíg. Sjá...

HUGO BOSS

Fæðingardagur þýska klæðskerans og tískukóngsins Hugo Boss (1885-1948). Hann vann náið og mikið með þýska Nasistaflokknum í síðari heimsstyrjöldinni, hannaði einkennisbúninga hermanna og stormsveita...

DJÚSARINN Á ÁVAXTABARNUM

Djúsari sendir myndskeyti: - Djúsarinn brá sér á ávaxtabarinn, borgaði 500 krónur fyrir 10 ávexti og nýja safapressan tilbúin að pressa. Hollara og ódýrara getur það...

BELJANDI FOSS Í STÚKUNNI Í LAUGARDAL

Arkitektinn AI, sjá hér, heldur áfram tilraunum sínum til bjargar stúkunni í Laugardalslaug frá niðurrifi. Nýjasta útgáfan er beljandi foss sem endar i lauginni...

HM KJÓLARNIR KOMNIR

"Þetta eru liðin sem við spáðum áfram og þau eru núna komin í 16 liða úrslit," segja kaupmennirnir í Kjólar & konfekt á Laugavegi...

STÚKUNNI Í LAUGARDAL BREYTT Í PIKNIK SVÆÐI

Arkitektinn AI sendir myndskeyti: - Tillaga að hugmynd að breyta Laugardalsstúkunni í piknik svæði. Með litlum svölum til útivistar þar sem fólk gæti komið með hressingu....

NÝR FÁNI EFTIR JÁKVÆÐA KOSNINGU

Svona gæti nýr íslenskur fáni litið út eftir jákvæða þjóðaratkvæðagreiðslu. Reyndar er þetta þjóðfáni Grænhöfðaeyja en kannski mætti gera skiptidíl...

STÚKA LAUGARDALSLAUGAR AÐ HRUNI KOMIN

Glæsileg stúka Laugardalslaugarinnar er að hruni komin sökum viðhaldsleysis. Einu mesta bæjarprýði Reykjavíkur hefur ekki verið sinnt sem skyldi í 60 ár. Fimm pottar...

MOKAÐ MEÐ TESKEIÐUM Á LAUGAVEGI

Mokað með teskeiðum á Laugavegi 1. Nýr grunnur að tveggja hæða húsi sem á eftir að sóma sér vel í þéttingu Reykjavíkurborgar.

Sagt er...

"Alltaf fær maður eitthvað," sagði kvikmyndajöfurinn Friðrik Þór Friðriksson í veiðitúr í fyrra.

Lag dagsins

Ari Edwald, fyrrum forstjóri stórfyrirtækja, lögfræðingur, viðskiptafræðingur og nú oddviti Miðflokksins í Reykjavík, er afmælisbarn dagsins (62). Hann fær óskalagið "Aravísur" með Ingibjörgu Þorbergs. https://www.youtube.com/watch?v=iSEdmD79_p8&t=12s