Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands lætur sér fátt óviðkomandi og býður nú upp á nám til löggildingar í fasteigna og skipasölu á 1.850.000 krónur.
Námið hefst 20. ágúst 2025 og lýkur með útskrift í júní 2027.
– Markmið námsins er nemendur öðlist þá þekkingu og færni sem nauðsynleg er til að standast próf til löggildingar um sölu fasteigna- og skipa.
– Að nemendur öðlist fræðilega þekkingu og faglega kunnáttu og hæfni til að takast á við alla þætti innan fasteigna- og skipasölu.
Umsóknarfrestur er til 15. maí.